Fjölgar minna hjá Icelandair en heilt yfir og sætanýting dregst saman

Ferðamönnum á Íslandi í febrúar fjölgaði um 47 prósent milli ára. Þeir sem flugu með Icelandair fjölgaði um ellefu prósent og sætanýting dróst saman.

icelandair_737MAX_big2.jpg
Auglýsing

Ferða­mönnum sem komu til Íslands fjölg­aði um 47,3 pró­sent á milli febr­ú­ar­mán­aðar 2016 og saman mán­aðar 2017. Ljóst er að sú aukn­ing náði ekki nema að hluta til stærsta íslenska flug­fé­lags­ins, Icelandair. Í til­kynn­ingu frá Icelandair Group, móð­ur­fé­lags Icelanda­ir, til Kaup­hallar Íslands um flutn­ings­tölur félags­ins í febr­úar síð­ast­liðnum kemur fram að far­þegar Icelandair voru 11 pró­sent fleiri en þeir voru í sama mán­uði 2016.

Það er mun minna en sem nemur fram­boðs­aukn­ingu Icelandair, en hún nam 18 pró­sentum milli ára. Sæta­nýt­ing dróst því saman úr 79 pró­sentum í 75,9 pró­sent.

Sömu sögu er að segja af Flug­fé­lagi Íslands, sem er í eigu Icelandair Group og flýgur inn­an­lands á Íslandi og til alþjóð­legra áfanga­staða eins og Græn­lands, Þórs­hafn­ar, Belfast og Aber­deen í Skotlandi. Fram­boð félags­ins jókst um 29 pró­sent milli ára en sæta­nýt­ing dróst veru­lega sam­an, úr 77,7 pró­sent í febr­úar 2016 í 68,2 pró­sent í síð­asta mán­uði. Þá fækk­aði seldum blokk­tímum í leiguflugi á vegum Icelandair Group um sjö pró­sent milli ára og frakt­flutn­ingar dróg­ust saman um 13 pró­sent. Sam­drátt­ur­inn í frakt­flutn­ingum skýrist þó aðal­lega á því að verk­fall sjó­manna hafði í för með sér mik­inn sam­drátt í útflutn­ingi á fiski.

Auglýsing

Flutn­ings­töl­urnar voru þó ekki allar slæmar hjá Icelandair Group. Hót­el­starf­semi félags­ins gengur betur en í febr­úar í fyrra. Fram­boðið á gistin­óttum hefur aukist, fleiri nætur eru seldar og því er her­bergj­a­nýt­ingin betri, fer úr 84 pró­sent í 85,6 pró­sent.

Til sam­an­burðar flutti WOW air 170 pró­sent fleiri far­þega í febr­úar 2017 en í sama mán­uði ári áður. Sæta­nýt­ing félags­ins var 87 pró­sent, sem er sama nýt­ing og var í febr­úar 2016.

Gríð­ar­legar lækk­anir á skömmum tíma

Mikil ólga hefur verið í kringum Icelandair Group frá því að félagið sendi frá sér afkomu­við­vörun í lok jan­ú­ar. Síðan þá hefur mark­aðsvirði bréfa í félag­inu hríð­fall­ið. Alls hafa bréf í Icelandair Group fallið um 37 pró­sent frá því seint í jan­ú­ar. Bréfin hafa lækkað um 62 pró­sent frá því í apríl 2016.

Innan Icelandair telja stjórn­­end­­ur, sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum Kjarn­ans, að dýfan hafi verið allt of mikil miðað við hver staða félags­­ins er og orðrómur hefur verið á mark­aði um að ein­hverjir hafi beitt sér sér­­stak­­lega fyrir því að lækka virði bréfa í Icelandair í við­skipta­legum til­­­gangi. Á meðal þeirra sem oft­­ast voru nefndir í því sam­hengi er Kvika banki. Sig­urður Atli Jóns­son, for­stjóri Kviku, neit­aði því í við­tali við Við­skipta­blaðið 23. febr­úar að bank­inn hefði að nokkru leyti unnið mark­visst að því að lækka bréf í Icelandair.

Á aðal­fundi í síð­ustu viku var kjörin ný stjórn Icelandair Group. Sig­urður Helga­son, sem hafði verið stjórn­ar­for­maður um ára­bil, gaf ekki kost á sér til end­ur­kjörs. Nýja stjórn Icelandair Group skipa þau Ást­hild­ur Mar­grét Ot­hars­dótt­ir, Georg Lúð­vík­­s­­­son, Katrín Olga Jó­hann­es­dótt­ir, Ómar Bene­dikts­­­son og Úlfar Stein­­­dór­s­­­son. Úlf­­ar, sem er for­­stjóri Toyota á Íslandi, er jafn­­framt nýr stjórn­­­ar­­for­­maður félags­­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None