Atvinnuþátttaka kvenna var tæp 80 prósent í fyrra, og hefur aldrei verið hærri. Atvinnuþátttaka karla var rúm 87 prósent. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands, sem gefur út bæklinginn Konur og karlar á Íslandi 2017 í samstarfi við Jafnréttisstofu og velferðarráðuneytið í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Óleiðréttur launamunur kynjanna hjá fullvinnandi launþegum var rúmlega fjórtán prósent árið 2015. Tæplega helmingur kvenna á aldrinum 25 til 64 ára var með háskólamenntun í fyrra, samanborið við þriðjung karla á sama aldri. Hlutföllin eru öfug þegar kemur að starfs- og framhaldsmenntun, slíka menntun hafa 45% karla en 30% kvenna.
Þá eru konur nú 48 prósent alþingismanna eftir síðustu kosningar, og 44 prósent kjörinna sveitarstjórnarmanna, en í mörgum áhrifastöðum er hlutur kvenna lægri.
Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra er ólíkt eftir stærð fyrirtækis. Konur voru 22% framkvæmdastjóra í fyrirtækjum með einn til 49 starfsmenn, en í fyrirtækjum með 250 eða fleiri starfsmenn eru konur níu prósent framkvæmdastjóra.