Fjármálaeftirlitið (FME) var upplýst um kaup á eignarhlut í Arion banka og var í aðdraganda þeirra í samskiptum við viðeigandi aðila vegna málsins. Þá á Fjármálaeftirlitið von á tilkynningum um virka eignarhluti í Arion banka vegna mögulegs aukins eignarhlutar. Á grundvelli slíkra tilkynninga leggur Fjármálaeftirlitið mat á hæfi aðila til að fara með eignarhlutinn og aflar meðal annars upplýsinga um raunverulega eigendur þeirra. Þetta kemur fram í frétt á vef eftirlitsins.
Þar segir einnig: „Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að fjármálafyrirtækjum ber að tilgreina nöfn og hlutfallslegt eignarhald allra þeirra sem eiga umfram eitt prósent hlutafjár á heimasíðu sinni. Sé lögaðili eigandi hlutafjár umfram eitt prósent skal jafnframt koma fram hvaða einstaklingur eða einstaklingar séu raunverulegir eigendur viðkomandi lögaðila.“
FME mun hins vegar ekki fara yfir hæfi þeirra vogunarsjóða sem keyptu stóran hlut í Arion banka í gær til að fara með virkan eignarhlut í bankanum. Ástæðan er sú að þeir tveir sjóðir sem tóku stærstu stöðuna, Taconic Capital og Attestor Capital, keyptu 9,99 prósent hlut hvor. Til að FME meti hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut þurfa þeir að eiga í minnsta lagi tíu prósent hlut.
Í frétt FME segir:„Með umræddum kaupum fjögurra fjárfesta á tæplega 30 prósent eignarhlut í Arion banka myndast ekki nýr virkur eignarhlutur í bankanum þar sem einstakir fjárfestar fara með minna en 10% eignarhlut. Kaupin hafa ekki áhrif á skilyrði sem Fjármálaeftirlitið setti árið 2010 fyrir virkum eignarhlut Kaupþings í gegnum eignarhaldsfélagið Kaupskil í bankanum sem m.a. takmarka verulega áhrif hluthafa Kaupþings á stjórnun bankans, en umræddir fjárfestar fara beint eða óbeint með eignarhlut í Kaupþingi. Fjármálaeftirlitið hefur áskilið sér rétt til að taka upp ofangreind skilyrði og hefur sett fram tímamörk í því skyni. Umræddum eignarhlutum fylgir ekki atkvæðisréttur að svo stöddu.“