„Ónákvæmni gætti í frétt Fjármálaeftirlitsins (FME) fyrr í dag þar sem fjallað var um kaup fjárfesta á tæplega 30% eignarhlut í Arion banka. Í fréttinni sagði að umræddum hlutum fylgdi ekki atkvæðisréttur, en hið rétta er að Fjármálaeftirlitið hefur vitneskju um þetta atriði að því er varðar þrjá stærstu aðilana, en hefur ekki upplýsingar um þetta atriði varðandi þann fjórða.“
Þetta kemur fram í stutri yfirlýsingu FME, en fyrr í dag birtist á vef eftirlitsins yfirlýsing vegna viðskipta með tæplega 30 prósent hlut í Arion banka, og kom þar fram að þessum hlutum fylgdi ekki atkvæðisréttur að svo stöddu.
Í frétt FME var farið yfir hlutverkið sem eftirlitið hefur samkvæmt lögum, þegar kemur að því að meta hæfi eigenda fjármálafyrirtækja. „Fjármálaeftirlitið hefur það hlutverk að meta hæfi virkra eigenda að fjármálafyrirtækjum og geta kaup á virkum eignarhlut ekki komið til framkvæmda fyrr en stofnunin hefur tilkynnt þeim sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut að hann sé hæfur til að fara með eignarhlutinn. Með virkum eignarhlut er átt við beina eða óbeina hlutdeild í fjármálafyrirtæki sem nemur 10% eða meira af hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétti eða sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi félags. Varðandi mat á hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut vísast til umfjöllunar á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.
Með umræddum kaupum fjögurra fjárfesta á tæplega 30% eignarhlut í Arion banka myndast ekki nýr virkur eignarhlutur í bankanum þar sem einstakir fjárfestar fara með minna en 10% eignarhlut. Kaupin hafa ekki áhrif á skilyrði sem Fjármálaeftirlitiðsetti árið 2010 fyrir virkum eignarhlut Kaupþings í gegnum eignarhaldsfélagið Kaupskil í bankanum sem m.a. takmarka verulega áhrif hluthafa Kaupþings á stjórnun bankans, en umræddir fjárfestar fara beint eða óbeint með eignarhlut í Kaupþingi. Fjármálaeftirlitið hefur áskilið sér rétt til að taka upp ofangreind skilyrði og hefur sett fram tímamörk í því skyni. Umræddum eignarhlutum fylgir ekki atkvæðisréttur að svo stöddu,“ sagði í yfirlýsingunni.
Í ítarlegri fréttaskýringu Kjarnans um þessi viðskipti, er fjallað um viðskiptin fyrrnefndu frá ýmsum hliðum, meðal annars að ekki liggi fyrir vitneskja um það hverjir séu endanlegir eigendur þessa 30 prósent hlutar. „Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að fjármálafyrirtækjum ber að tilgreina nöfn og hlutfallslegt eignarhald allra þeirra sem eiga umfram 1% hlutafjár á heimasíðu sinni. Sé lögaðili eigandi hlutafjár umfram 1% skal jafnframt koma fram hvaða einstaklingur eða einstaklingar séu raunverulegir eigendur viðkomandi lögaðila,“ segir í frétt FME.