Átta handteknir vegna hryðjuverks í London

Búið er að handtaka átta einstaklinga í tengslum við hryðjuverkin í London í gær. Lögreglan telur þó að árásarmaðurinn hafi verið einn að verki. Maðurinn var fæddur og uppalinn í Bretlandi, sagði forsætisráðherrann á þingi í morgun.

hryðjuverk í london
Auglýsing

Árás­armað­ur­inn sem varð þremur að bana í London í gær hafði verið til rann­sóknar hjá bresku rann­sókn­ar­lög­regl­unni MI5. Ther­esa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, greindi þing­mönnum frá þessu á þing­inu í morg­un. 

Lög­regla telur enn að mað­ur­inn hafi verið einn að verki og hafi verið inn­blás­inn af öðrum hryðju­verka­árásum í Evr­ópu nýlega. „Mað­ur­inn var fæddur í Bret­landi og fyrir ein­hverjum árum síðan var hann rann­sak­aður af MI5 í tengslum við áhyggjur af ofbeldi og ofstæki,“ sagði May meðal ann­ars. Hún sagði málið gam­alt og að hann hafi ekki lengur verið inni í mynd­inni hjá yfir­völd­um. 

Átta ein­stak­lingar hafa verið hand­teknir í tengslum við rann­sókn lög­regl­unnar á sex stöðum víða um Bret­land, meðal ann­ars í Birming­ham og í London. Guar­dian greinir frá því að bíll­inn, sem not­aður var til að keyra á gang­andi veg­far­endur á West­min­ster-brúnni, hafi verið leigður frá Enter­prise í Birming­ham. 

Auglýsing

Þing­menn úr öllum flokkum hafa lofað Ther­esu May á þing­fund­inum sem nú er í gangi. Hún þykir hafa talað fyrir alla þjóð­ina með yfir­lýs­ingum sínum um mál­ið. Meðal þess sem hún hefur sagt er að besta leiðin til að svara hryðju­verk­unum sé að fólk haldi áfram með lífið óbreytt. Þannig sé hryðju­verka­mönnum neitað um sig­ur. „Það er svar sem segir þeim körlum og konum sem breiða út þetta hatur og illsku: þið munið ekki sigra okk­ur.“ Bæði May og þing­menn allra flokka hafa einnig lagt áherslu á að ekki megi láta hryðju­verk skipa fólki í fylk­ingar eftir trú eða öðru. Það þurfi að standa vörð um lýð­ræðið og gildi Bret­lands. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None