Eignir tæknirisa aukast ævintýralega

Á síðustu mánuður hefur hlutabréfaverð í Tesla og Amazon þotið upp. Frumkvöðlarnir Elon Musk og Jeff Bezos hafa hagnast verulega á þessu.

Elon Musk er stofnandi Tesla Motors.
Elon Musk er stofnandi Tesla Motors.
Auglýsing

Það er óhætt að segja að raf­bíla- og raf­tækni­fram­leið­and­inn Tesla Motors og tækniris­inn Amazon séu nú að ganga í gegnum mikið vaxt­ar­skeið. Tesla varð í dag verð­mæt­asti bíla­fram­leið­andi Banda­ríkj­anna og fór verð­mið­inn í fyrsta skipti yfir 50 millj­arða Banda­ríkja­dala. Næst þar á eftir kemur General Motors og síðan Ford, sem er 45 millj­arða Banda­ríkja­dala virði. Í byrjun árs­ins var fyr­ir­tækið 35 millj­arða Banda­ríkja­dala virði og því hefur aukn­ing mark­aðsvirðis fyr­ir­tæk­is­ins verið mikil á und­an­förnum þremur mán­uð­um, eða sem nemur um 15 millj­örðum Banda­ríkja­dala, um 1.700 millj­örðum króna.

Eig­and­inn hagn­ast

Stærsti eig­and­inn, for­stjór­inn og stofn­and­inn, Elon Musk, hefur hagn­ast veru­lega á þessum mikla upp­gangi mark­aðsvirðis enda meðal stærstu eig­enda félags­ins. Hans eignir eru nú metnar upp á 18,4 millj­arða Banda­ríkja­dala. 

­Reiknað er með því að næsta ár verði stærsta ár í sögu Tesla en þá mun Tesla Model 3 bíll­inn fara í almenna sölu en um 500 þús­und bílar hafa þegar verið forp­ant­að­ir. Bíll­inn mun kosta frá 35 þús­und Banda­ríkja­döl­um, eða sem nemur tæp­lega fjórum millj­ónum króna.

Vaxt­ar­á­formin á fullu hjá Amazon

Annar tæknirisi hefur hefur upp­lifað mik­inn vöxt að und­an­förnu er Amazon en mark­aðsvirði þess er nú 431 millj­arður Banda­ríkja­dala og hefur það auk­ist um meira 100 millj­arða Banda­ríkja­dala á innan við einu ári, eða sem nemur um 11 þús­und millj­örðum króna. Amazon er lang­sam­lega verð­mætasta smá­sölu­fyr­ir­tæki heims­ins en næst á eftir því kemur Wal­mart, en mark­aðsvirði þess er 222 millj­arðar Banda­ríkja­dala.

Á næstu 12 mán­uðum hyggst félagið ráða 80 þús­und nýja starfs­menn, en nú þegar hefur vaxt­ar­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins, sem sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi félags­ins í fyrra, gengið eftir og gott betur og hafa 20 þús­und nýir starfs­menn verið ráðnir á síð­ustu tveimur mán­uð­um.

Auglýsing

Fyr­ir­tækið hyggst opna tugi vöru­húsa um öll Banda­ríkin til að styrkja lag­er­starf­semi sína vegna mik­ils vaxtar í verslun á net­inu. Þá er fyr­ir­tækið einnig að und­ir­búa inn­reið fyr­ir­tækis í smá­sölu í versl­unum og verður þar stuðst við gervi­greind að miklu leyti, þar sem við­skipta­vinir munu geta gengið inn í versl­un­ina, sótt vör­una og svo gengið út, án þess að þurfa að fara á afgreiðslu­kassa. App frá Amazon, Amazon Go, mun tryggja að not­enda­upp­lýs­ingar um við­skiptin geym­ast og eru síðan skráð á kredit­kort við­kom­andi við­skipta­vinar í gegnum Amazon svæði við­kom­andi.

Ein slík verslun hefur verið opnuð í höf­uð­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins í Seatt­le, en á næst­unni verða fleiri versl­anir opn­að­ar. 



Eig­and­inn að verða sá rík­asti?

Næst ríksti maður heims í lok síð­asta árs, Jeff Bezos, hefur hagn­ast ævin­týra­lega á upp­gangi félags­ins en hann á ennþá 17 pró­sent eign­ar­hlut í félag­inu. Í lok síð­asta árs voru eignir hans metnar á 73 millj­arða Banda­ríkja­dala en frá þeim tíma hefur eign­ar­hlutur hans hækkað mik­ið, og eru eignir hans nú metnar á 77,7 millj­arða Banda­ríkja­dala. 

Nágranni Bezos við Lake Was­hington á Seattle svæð­inu, Bill Gates, er rík­asti maður heims­ins en eignir hans eru nú metnar á 87 millj­arða Banda­ríkja­dala, sam­kvæmt upp­færðum lista For­bes.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None