Amazon boðar byltingu í verslun

Amazon kynnti í gær nýja tækni við verslun sem talið er að muni umbylta verslunargeiranum. Fólk mun geta labbað inn, náð í vöruna og farið síðan út án þess að fara að kassanum eða í biðröð.

Amazon-Fresh.jpg
Auglýsing

Hluta­bréf í net­versl­un­ar- og tækniris­anum Amazon hækk­uðu um 2,57 pró­sent í gær eftir að félagið kynnti nýja tækni sem inn­leidd verður í búðir á vegum fyr­ir­tæk­is­ins á fyrri hluta næsta árs. Með tækn­inni, sem kölluð er Amazon go, getur fólk gengið inn í versl­un­ina, fundið vör­urnar sem það leitar að og farið út úr búð­inni án þess að fara að afgreiðslu­kassa eða bíða í bið­röð. Eina sem þarf að snjall­sími og hug­bún­aður í hann. 

Í byrjun næsta árs verður fyrsta búðin sem verður sér­hæfð með þessum hætti opnuð í mið­borg Seattle þar sem Amazon er með höf­uð­stöðvar sín­ar. Mark­aðsvirði Amazon hefur vaxið hratt á und­an­förnu ári og nemur það nú 360,9 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 45 þús­und millj­örðum króna. 

Auglýsing


Þessi nýja tækni er talin geta haft mikil áhrif á versl­un­ar­geir­ann í Banda­ríkj­unum en sam­kvæmt umfjöllun Seattle Times starfa um 3,5 millj­ónir manna við afgreiðslu­störf í versl­un­um. Nái þessi nýja tækni Amazon að festa rætur á mark­aðnum gæti það haft í för með sér erf­ið­leika og aukið atvinnu­leysi hjá fólki sem starfar í versl­un­ar­geir­an­um. Hag­kvæmnin í rekstr­inum eykst hins vegar veru­lega og þæg­indin fyrir við­skipta­vini sömu­leið­is.

Amazon hyggst sækja enn frekar fram á versl­un­ar­mark­aði sam­hliða vexti í net­verslun þar sem fyr­ir­tækið er leið­andi á heims­vísu. Í Banda­ríkj­unum sækir stærsti vinnu­veit­andi Banda­ríkj­anna, Wal­Mart, á í net­versl­un­inni en það fyr­ir­tæki er lang­sam­lega stærsti versl­un­ar­rek­andi í Banda­ríkj­unum en árlegar tekjur þess nema tæp­lega 500 millj­örðum Banda­ríkja­dala árlega. 

Wall Street Journal greindi frá því í gær að Amazon væri með í und­ir­bún­ingi að opna um tvö þús­und versl­an­ir, af ýmsu tagi, þar sem ný tækni er notuð til að auð­velda fólki að versla. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None