Verslun í alþjóðlegu umhverfi

Andrés Magnússon segir að íslensk verslun þurfi að fylgjast náið með öllum þeim öru breytingum sem verða á komandi árum. Fyrirtæki hafi sýnt það í gegnum árin að þau séu fljót að laga sig að breyttu umhverfi og þau muni halda áfram að gera það.

Auglýsing

Það eru fimm millj­ónir versl­un­ar­fyr­ir­tækja starf­andi í Evr­ópu. Þessi stóri hópur er u.þ.b. 20% allra fyr­ir­tækja sem starf­andi eru í álf­unni og veita þau 26 millj­ónum fólks atvinnu. Þetta gera um 13% alls vinnu­afls í Evr­ópu og er versl­unin sú atvinnu­grein sem veitir flestum atvinnu þar. Verslun á Íslandi er hér engin und­an­tekn­ing en mik­il­vægi hennar sem atvinnu­greinar er mikið í öllu til­liti. Sam­kvæmt Hag­stofu Íslands er fram­lag versl­unar til lands­fram­leiðsl­unnar 9,6% og um 12,5% þeirra sem eru á vinnu­mark­aði starfa við versl­un. Það er holt að hafa þessar stað­reyndir í huga ekki síst í ljósi þeirrar umræðu sem oft sprettur upp um mik­il­vægi ein­stakra atvinnu­greina sem er ekki alveg dæma­laust úr íslenskri þjóð­fé­lags­um­ræðu. Versl­unin sem atvinnu­grein getur því verið stolt af þeirri mik­il­vægu stöðu sem hún hefur í íslensku sam­fé­lagi.

Þær breyt­ingar sem greinin stendur nú frammi fyrir eru stærri og ganga hraðar yfir en nokkru sinni fyrr. Kröfur neyt­enda, sam­hliða neyslu- og inn­kaupa­mynstri sem tekur sífelldum breyt­ing­um, leggja auknar kröfur á versl­un­ina ætli hún að gegna því hlut­verki í sam­fé­lag­inu sem hún er búin að gera alla tíð. Þú þarft nefni­lega að vera „á tán­um“ í versl­un­ar­rekstri bæði hér eftir sem hingað til. Landa­mæri í hefð­bund­inni merk­ingu hafa æ minna gildi þegar kemur að versl­un, þar sem sífellt fleiri kjósa að gera öll sín við­skipti á net­inu og stað­setn­ing þess sem þú gerir við­skipti við virð­ist skipta sífellt minna máli. Spár helstu grein­ing­ar­að­ila gera ráð fyrir að um 30% af veltu smá­sölu­versl­unar í Evr­ópu­löndum verði í formi net­versl­unar eftir 5 – 7 ár og engin ástæða er til að ætla að annað muni gilda fyrir Ísland.

Staf­ræn þróun er alls ráð­andi í þeirri umbreyt­ingu sem versl­unin er að ganga í gegn um. Sú umbreyt­ing mun halda áfram og á meiri hraða á kom­andi árum. Aukin krafa er gerð til versl­un­ar­innar um að hún leggi sitt af mörkum til minnk­unar á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Bar­áttan gegn hlýnun jarðar harðnar stöðugt og versl­un­inni ber að leggja sitt af mörk­um. Versl nin, þ.e. bæði smá­sala og heildsala, bera með beinum eða óbeinum hætti ábyrgð á um 40% af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í Evr­ópu, en hins vegar er ein­ungis um 5% af heild­ar­losun í grein­inni sem rekkja má beint til starf­semi versl­ana. Stærstur hluti los­un­ar­innar á sér stað annað hvort í fram­leiðslu­ferli vör­unnar eða á meðan á neyslu eða notkun hinna seldu vara stend­ur. M.ö.o. langstærstur hluti þess­arar los­un­ar­innar á sér stað í virð­is­keðj­unni. Sam­hliða því sem versl­unin mun leggja sitt að mörkum verða allir þættir virð­is­keðj­unnar að gera hið sama og víst er að sjónum verður í auknum mæli beint í þá átt á næst­unni. Fyr­ir­tækin sem fram­leiða þær vörur sem versl­unin selur verða að leggja sitt af mörkum eins og aðr­ir.

Auglýsing

Sam­hliða þeirri hröðu umbreyt­ingu sem er að verða í umhverfi versl­unar þessi árin, eykst þörfin fyrir sí- og end­ur­menntun starfs­fólks í grein­inni. Það er eng­inn ágrein­ingur um að hefð­bundnum störfum í verslun mun fækka héðan í frá. Það er hins vegar ekki þar með sagt að störfum tengdum verslun muni fækka, en þau munu óhjá­kvæmi­lega breyt­ast mik­ið. Að mati þeirra grein­ing­ar­að­ila sem best fylgj­ast með þróun versl­unar í Evr­ópu verður nauð­syn­legt að end­ur­mennta u.þ.b. helm­ing þess starfs­fólks sem vinnur í grein­inni árlega. Það eru því um 13 milljón manns sem vinna við verslun í Evr­ópu sem þurfa að fara í ein­hvers konar end­ur­menntun árlega. Það eitt sýnir hversu hröð þróun er að verða i öllu umhverfi versl­un­ar.

Íslensk verslun hefur alla burði til að halda stöðu sinni í því umhverfi sem við blas­ir. Greinin þarf að fylgj­ast náið með öllum þeim öru breyt­ingum sem verða í verslun á kom­andi árum. Fyr­ir­tæki í verslun hafa sýnt það í gegnum árin að þau eru fljót að laga sig að breyttu umhverfi og þau munu halda áfram að gera það. Sam­tök versl­unar og þjón­ustu munu áfram að veita aðild­ar­fyr­ir­tækjum sínum alla þá aðstoð sem þau geta veitt, en náið sam­starf hags­muna­sam­tak­anna og fyr­ir­tækja í grein­inni geta skipt sköpum við þær krefj­andi aðstæður sem nú eru uppi.

Höf­undur er fram­kvæmda­stjóri Sam­taka versl­unar og þjón­ustu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit