Dagana 27. til 30. apríl verður viðburðurinn LYST - Future of Food - haldinn í annað skipti á vegum Íslenska sjávarklasans. Viðburðinn samanstendur af ráðstefnu um viðskipti með mat og matarhakkaþon, að því er segir í tilkynningu.
Á ráðstefnuna munu vera framsögur frá úrvali af erlendum og innlendum áhrifavöldum á matvælamarkaðnum, en sérstök áhersla verður á sjálfbærni í þetta skiptið.
Matarfrumkvöðlum verður boðið til þátttöku í matarhakkaþoni, þar sem þeir taka þátt í skapa lausnir fyrir matvælageirann með aðstoð þrautreyndra mentora innan geirans.
„Viðskipti með matvæli eru að breytast á ógnarhraða, við Íslendingar erum matvælaþjóð sem er mjög háð breytingum sem verða á mörkuðum. Markmiðið með viðburðinum er að fá fólk í fremstu röð til að heimsækja okkur og fá tækifæri til að heyra frá þeim hvaða breytingar eru í farvatninu. Jafnframt ætum við að bjóða þeim sem koma í heimsókn að hjálpa okkur móta næstu kynslóð matarfrumkvöðla okkar Íslendinga,“ segir í tilkynningu í tilefni viðburðarins.
Hakkaþon er viðburður sem tíðkast víða í tækniheiminum þessi misserin, og þar takast þátttakendur á við krefjandi verkefni og koma með alvöru lausnir á innan við 36 klukkutímum. Jafnframt fá þátttakendur tækifæri til þess að máta hugmyndir sínar og lausnir við reynda mentora sem gefa þeim faglega endurgjöf.
Að lokum kynna þátttakendur lausnir sínar fyrir dómnefnd sem velja bestu lausnina.
Aðalgestur LYST verður Sara Roversi en hún rekur Future of Food Institution á Ítalíu, sem hefur það að markmiði að efla matarnýsköpun á Ítalíu. Sara er nýkomin úr matarheimsreisu þar sem hún ásamt nemendum sínum eru búin að greina matarnýsköpun á milli menningarheima. Sara æltar að greina frá niðurstöðum sínum og setja Ísland inn í það samhengi, að því er segir í tilkynningu.