Félag atvinnurekenda leggst gegn því að Markaðsráði kindakjöts fái beiðni sína um undanþágu hjá Samkeppniseftirlitinu samþykkta. Kemur þetta fram á vef félagsins , en félagið hefur sent Samkeppniseftirlitinu bréf þess efnis.
Lestu meira
„Einhvers konar samstarf um markaðssetningu kann að vera lögmætt og má í því samhengi visa til þess ágæta starfs sem unnið er á vettvangi Íslandsstofu til að markaðssetja og kynna íslenskt lambakjöt erlendis. Það sama á ekki við um annað samstarf, sér í lagi skiptingu markaða og samkomulag um að takmarka vöruframboð á markaði sem mun halda uppi verði,“ segir í bréfi FA.
Í beiðni Markaðsráðs kemur fram að gert sé ráð fyrir að samstarf sláturleyfishafa feli í sér að þeir skuldbindi sig til að flytja út 35% af framleiðslu sinni. Í bréfi FA segir hins vegar að hugmyndir markaðsráðsins um útflutningsskyldu á sláturleyfishafa séu „stórkostlega gallaðar“ og muni eingöngu skaða hagsmuni neytenda.