Benz innkallar diesel-bíla vegna mengunarásakana

Eigendur þriggja milljóna Mercedes-Benz-bíla munu senda bíla sína til þjónustuaðila svo hægt sé að laga galla í stýrikerfi bílanna. Óvíst er hvort bílar á Íslandi falli undir þetta.

Mercedes-Benz er í eigu Daimler.
Mercedes-Benz er í eigu Daimler.
Auglýsing

Þrjár millj­ónir Mercedes-Benz-bílar verða inn­kall­aðir í Evr­ópu á næst­unni svo hægt verði að lag­færa galla í stýri­kerfi dies­el-bíla sem veldur of mik­illi meng­un.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Öskju, umboðs­að­ila Mercedes-Benz á Íslandi, hafa engar til­kynn­ingar borist að utan um að bílar á Íslandi falli undir inn­köll­un­ar­skil­yrð­in.

Daim­ler, móð­ur­fé­lag Mercedes, hefur sætt rann­sókn yfir­valda ríkja Evr­ópu vegna hugs­an­legra galla í eða mis­notk­unar á stýri­kerfi dies­elknú­inna bíla sem veldur því að bíl­arnir menga mun meira í venju­legum akstri en þegar þeir eru í skoð­un.

Tals­maður Daim­ler segir að það muni kosta um 220 milljón evrur (tæp­lega 27 millj­arða íslenskra króna) að inn­kalla alla bíl­ana sem þurfa stýri­kerf­is­upp­færslu. Á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC er haft eftir tals­mann­inum að ráð­ist væri í inn­köllun bíl­anna að frum­kvæði fyr­ir­tæk­is­ins en ekki vegna skip­ana frá yfir­völd­um.

Daim­ler seg­ist ekki ætla að rukka við­skipta­vini fyrir þjón­ust­una sem mun standa til boða á næstu vik­um. Yfir­menn Mercedes-Benz sátu fyrir svörum þýskrar þing­nefndar í síð­ustu viku en áður hafði fyr­ir­tækið hleypt full­trúum sam­göngu­yf­ir­valda í Þýska­landi að rann­saka útblástur Benz-bíla á nýjan leik. Þá gerði þýska lög­reglan hús­leit í ell­efu skrif­stofu­bygg­ingum Mercedes-Benz í maí.

Óskar Páll Þor­gils­son, for­stöðu­maður þjón­ustu­sviðs Öskju, sagði í sam­tali við Kjarn­ann að engin meld­ing hefði borist að utan um að inn­kalla ætti bíla á Íslandi. Hann telur það lík­legra að hér séu ein­fald­lega engir bílar sem falla undir inn­köll­un­ar­skil­yrð­in. „Það er óvana­legt að það séu komnar fréttir um eitt­hvað svona og ég hafi ekki fengið e-mail um það,“ segir Óskar Páll. Hann hafi sent fyr­ir­spurn til fram­leið­and­ans um leið og hann las frétt­irnar en ekki verið búinn að fá svar þegar Kjarn­inn náði tali af hon­um.

Auglýsing

Allt vegna Volkswagen svindls­ins

Eftir að upp komst um svindl þýska bíla­fram­leið­and­ans Volkswagen haustið 2015 hafa evr­ópsk sam­göngu­yf­ir­völd hafið ítar­lega rann­sókn á því hvernig bíla­fram­leið­endur skrá útblástur bíla sinna.

Lang­flestir – ef ekki allir – bílar sem fram­leiddir eru í dag eru búnir tölvu­stýr­ingu sem sem skráir ýmsar hag­nýtar og mik­il­vægar upp­lýs­ingar um bíl­inn, hvort sem hann er í akstri eða ekki. Þessar upp­lýs­ingar geta reynst mik­il­vægar fyrir öku­menn, sem fá upp­lýs­ingar um loft­þrýst­ing í dekkj­um, ástand vélar og við­var­anir um aðstæður á vegum beint í mæla­borð­ið. Tölvu­tæku upp­lýs­ing­arnar eru hins vegar einnig mik­il­vægar fyrir yfir­völd sem reiða sig á þessi tölvu­kerfi til þess að meta megnun frá bíl­un­um.

Volkswagen varð upp­víst að því að svindla á mæl­ingum útblást­urs frá dies­elknúnum bílum sínum í sept­em­ber 2015. Svind­lið fólst í því að þegar bíll­inn var tengdur tölvu eft­ir­lits­að­ila eða ein­hvers sem þurfti upp­lýs­ingar um útblástur vél­ar­inn­ar, skipti tölva bíls­ins um gír, ef svo má segja, dró úr afli vél­ar­innar miðað við hvað eðli­legt getur talist og þannig minnk­aði útblástur frá bílnum allt að 40-falt.

Í kjöl­farið hafa yfir­menn fyr­ir­tæk­is­ins bæði misst vinn­una og sumir eiga yfir höfði sér dóms­mál vegna svindls­ins. Kostn­aður Volkswagen er tal­inn í millj­örðum evra vegna svindls­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent