Hleðslustöðvarfyrirtækið Ísorka mun hefja gjaldtöku fyrir hleðslu rafbíla á völdum rafhleðslustöðvum í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu fyrirtækisins.
Í tilkynningunni segir að farið hafði af stað með gjaldtökuna til þess að flýta fyrir innviðauppbyggingu fyrir rafbíla, en hleðsla á rafhleðslustöðvum hefur hingað til verið ókeypis.
Sigurður Ástgeirsson, verkefnastjóri hjá Ísorku, segir að ljóst sé að hleðslustöðvar fyrir rafbíla muni ekki fjölga í takt við þörf nema með gjaldtöku því þannig skapist hvati til að fjölga hleðslustöðvum og bæta þjónustu við rafbílaeigendur.
Einnig bætir Sigurður við að nú sé mikilvægt að sem flestir sem bjóða hleðslu fyrir rafbíla sýni samstöðu og geri slíkt hið sama, til þess að rafbílavæðing Íslands verði raunhæf á næstu árum, ,,Við erum í mun betri aðstöðu en margar aðrar þjóðir til að gera þetta vel enda með aðgang að umhverfisvænu rafmagni. Það gerist hins vegar ekki á meðan hleðsla er gefin, ýmist á kostnað einkafyrirtækja eða skattgreiðenda.“
Hleðslustöðvar hafa flestar verið byggðar með aðkomu Orku Náttúrunnar, dótturfélags Orkuveitunnar. Hraðhleðslustöðvar fyrirtækisins eru 16 talsins, en til stendur að fjölga þeim á næstu misserum og búist er við því að hægt verði að keyra hringinn í kringum landið á rafmagnsbíl fyrir áramót.