Fylgið hreyfist um miðjuflokkana

Í nýjustu kosningaspánni má sjá að fylgi við stjórnmálaflokka virðist helst hreyfast í kringum „miðjuflokkana“. Kosningaspáin var gerð föstudagskvöldið 13. október.

Auglýsing

Fylgi við Sam­fylk­ing­una eykst nær stöðugt í kosn­inga­spánni og nú er svo komið að 11,9 pró­sent kjós­enda hyggj­ast kjósa flokk­inn í Alþing­is­kosn­ing­unum 28. októ­ber. Fylgi við Pírata heldur áfram að minnka og er nú 9,5 pró­sent og minna en fylgi við Mið­flokk Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar.

Mið­flokk­ur­inn er með 9,7 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni sem gerð var föstu­dags­kvöldið 13. októ­ber, þegar rétt rúmar tvær vikur eru til kosn­inga. Í kosn­inga­spánni eru nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­ana á fylgi stjórn­mála­flokka vegnar eftir fyrir fram ákveðnum við­mið­um. Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ingur gerir kosn­inga­spána í sam­starfi við Kjarn­ann.

Vin­sæl­asti flokkur lands­ins er sem fyrr Vinstri græn­ir. Stuðn­ingur við flokk Katrínar Jak­obs­dóttur hefur hins vegar dalað und­an­farna viku eða svo og er nú með stuðn­ing 25,1 pró­sent kjós­enda, miðað við 27 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni 7. októ­ber. Á sama tíma virð­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa náð jafn­vægi í um 23 pró­sent fylgi. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 22,2 pró­sent stuðn­ing.

Við­reisn og Björt fram­tíð eru enn með lítið fylgi og eiga tak­mark­aða mögu­leika á að ná mönnum á þing. Við­reisn er með 3,8 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni og Björt fram­tíð með 3,3 pró­sent.

Nýj­ustu vend­ingar í Við­reisn birt­ast hugs­an­lega ekki sterkt í þessum nýj­ustu tölum enda var nýjasta könn­un­in, sem er til grund­vallar kosn­inga­spánni, gerð á tveggja vikna tíma­bili, frá 29. sept­em­ber til 12. októ­ber. Bene­dikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, vék fyrir Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dóttur mið­viku­dags­kvöldið 11. októ­ber.

Það má segja að það hafi verið kom­inn tími fyrir Við­reisn til þess að bregð­ast við síminnk­andi fylgi flokks­ins að und­an­förnu. Áhuga­vert verður að fylgj­ast með kosn­inga­spám næstu daga og áhrifin sem for­manns­skiptin kunna hafa haft.

Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er enn í vand­ræðum með að afla fylg­is. Allar götur síðan Mið­flokk­ur­inn varð til eftir klofn­ing Sig­mundar Dav­íðs og stuðn­ings­manna hans úr Fram­sókn­ar­flokknum hefur fylgi Fram­sókn­ar­manna minnkað nær stöðugt. Flokkur Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar er nú með 6,4 pró­sent.

Lesa má í líkur fram­boð­anna á þing­manna­fjölda í kosn­inga­mið­stöð Kjarn­ans hér. Þar má einnig sjá sam­an­lagðan þing­styrk tveggja eða fleirri flokka sem gætu hugs­an­lega ímyndað sér að vinna saman í rík­is­stjórn að kosn­ingum lokn­um.

Niðurstöður kosningaspár 13. október 2017
Kosningaspáin var gerð að kvöldi 13. október 2017.
Þróun fylgis stjórnmálaflokka í kosningaspánni
Fylgi flokka miðað við kosningaspána frá og með 30. ágúst 2017.
B C D F M P S V Aðrir

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent