UN Women á Íslandi hefur söfnunarátak fyrir konur og stúlkur á flótta frá Sýrlandi. Eliza Reid, forsetafrú Íslands og Eva María Jónsdóttir, verndari UN Women á Íslandi heimsóttu griðastaði UN Women í Zaatari flóttamannabúðunum í Jórdaníu. Á griðastöðunum eru konur öruggar, fá atvinnutækifæri, menntun og daggæslu fyrir börn sín.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem UN Women á Íslandi sendi frá sér í dag.
Í tilkynningunni er bent á að konur og stúlkur í Zaatari flóttamannabúðunum búi við grimman veruleika. Flestar konur í búðunum séu margra barna mæður sem sárlega þurfa vernd, öryggi og stuðning til að koma undir sig fótunum á ný.
Samkvæmt samtökunum hefur ein af hverjum þremur konum í Zaatari búðunum verið gift á barnsaldri. Þau segja að konur og stúlkur í Zaatari séu berskjaldaðar fyrir ofbeldi og að fimmta hver kona í Zaatari búðunum sé fyrirvinna fjölskyldunnar. Aftur á móti séu atvinnutækifæri fyrir konur í Zaatari sárafá.
Um 80 þúsund Sýrlendingar dvelja í Zaatari eftir að hafa flúið stríðsátök og ofbeldi í heimalandi sínu. Búðirnar eru þær næststærstu í heiminum og jafnframt eru þær fjórða fjölmennasta borg Jórdaníu.
Konur og börn eru um 80 prósent íbúa í Zaatari og eiga erfitt uppdráttar í búðunum. Samkvæmt UN Women er það staðreynd að konur og stúlkur á flótta eiga í meiri hættu á að verða fyrir kynferðislegri áreitni og kynbundnu ofbeldi.
UN Women greina enn fremur frá því að flestar konur í Zaatari hafi orðið fyrir skelfilegum áföllum; misst börn sín, maka og ástvini og glíma við áfallastreituröskun, þunglyndi og einangrun. Margar þeirra séu ekkjur og einstæðar mæður.
Griðastaðir gera konum kleift að lifa með reisn
Til að sporna við ofbeldinu, aukningu barnahjónabanda og fátækt í flóttamannabúðunum starfrækir UN Women þrjá griðastaði fyrir konur og stúlkur. Þar eru konur og stúlkur óhultar fyrir ofbeldi, fá atvinnutækifæri, menntun og börnin daggæslu, þar fá konur einnig sálrænan stuðning eftir áföll og ofbeldi. Segir í tilkynningunni að þökk sé griðastöðum UN Women geti konur lifað með reisn og virðingu í erfiðum aðstæðum.
Aðsóknin í griðastaði UN Women er gríðarleg, að sögn samtakanna, og eru hundruð kvenna á biðlista eftir að komast að. Þau segja að til þess að byggja upp griðastaði UN Women þurfi aukið fjármagn og þess vegna þurfi konur og stúlkur í Zaatari á hjálp að halda.
Alvogen er bakhjarl herferðar UN Women á Íslandi og gerði samtökunum kleift að heimsækja griðastaði UN Women í Zaatari flóttamannabúðunum.
Sendu sms-ið KONUR í 1900 og veittu sýrlenskum konum á flótta atvinnu, öruggt skjól og nýtt upphaf.
Hér fyrir neðan má sjá myndband um stöðu kvenna í Zaatari búðunum og frá heimsókn UN Women á Íslandi, Evu Maríu og forsetafrúar Íslands.