Konur og stúlkur á flótta frá Sýrlandi búa við grimman veruleika - Neyðarsöfnun hafin

UN Women á Íslandi hefur hafið söfnunarátak fyrir konur og stúlkur á flótta frá Sýrlandi. Eliza Reid, forsetafrú Íslands og Eva María Jónsdóttir, verndari UN Women á Íslandi heimsóttu griðastaði UN Women í Zaatari flóttamannabúðunum í Jórdaníu.

Skjáskot af myndbandi Konur á flótta
Auglýsing

UN Women á Íslandi hefur söfn­unar­á­tak fyrir konur og stúlkur á flótta frá Sýr­landi. Eliza Reid, for­seta­frú Íslands og  Eva María Jóns­dótt­ir, vernd­ari UN Women á Íslandi heim­sóttu griða­staði UN Women í Zaat­ari flótta­manna­búð­unum í Jórdan­íu. Á griða­stöð­unum eru konur örugg­ar, fá atvinnu­tæki­færi, menntun og dag­gæslu fyrir börn sín.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem UN Women á Íslandi sendi frá sér í dag. 

Í til­kynn­ing­unni er bent á að konur og stúlkur í Zaat­ari flótta­manna­búð­unum búi við grimman veru­leika. Flestar konur í búð­unum séu margra barna mæður sem sár­lega þurfa vernd, öryggi og stuðn­ing til að koma undir sig fót­unum á ný. 

Auglýsing

Sam­kvæmt sam­tök­unum hefur ein af hverjum þremur konum í Zaat­ari búð­unum verið gift á barns­aldri. Þau segja að konur og stúlkur í Zaat­ari séu ber­skjald­aðar fyrir ofbeldi og að fimmta hver kona í Zaat­ari búð­unum sé fyr­ir­vinna fjöl­skyld­unn­ar. Aftur á móti séu atvinnu­tæki­færi fyrir konur í Zaat­ari sára­fá.

Eliza Reid - forsetafrú Mynd: UN Women

Um 80 þús­und Sýr­lend­ingar dvelja í Zaat­ari eftir að hafa flúið stríðs­á­tök og ofbeldi í heima­landi sínu. Búð­irnar eru þær næst­stærstu í heim­inum og jafn­framt eru þær fjórða fjöl­menn­asta borg Jórdan­íu.

Konur og börn eru um 80 pró­sent íbúa í Zaat­ari og eiga erfitt upp­dráttar í búð­un­um. Sam­kvæmt UN Women er það stað­reynd að konur og stúlkur á flótta eiga í meiri hættu á að verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni og kyn­bundnu ofbeld­i. 

UN Women greina enn fremur frá því að flestar konur í Zaat­ari hafi orðið fyrir skelfi­legum áföll­um; misst börn sín, maka og ást­vini og glíma við áfallastreiturösk­un, þung­lyndi og ein­angr­un. Margar þeirra séu ekkjur og ein­stæðar mæð­ur. 

Griða­staðir gera konum kleift að lifa með reisn

Til að sporna við ofbeld­inu, aukn­ingu barna­hjóna­banda og fátækt í flótta­manna­búð­unum starf­rækir UN Women þrjá griða­staði fyrir konur og stúlk­ur. Þar eru konur og stúlkur óhultar fyrir ofbeldi, fá atvinnu­tæki­færi, menntun og börnin dag­gæslu, þar fá konur einnig sál­rænan stuðn­ing eftir áföll og ofbeldi. Segir í til­kynn­ing­unni að þökk sé griða­stöðum UN Women geti konur lifað með reisn og virð­ingu í erf­iðum aðstæð­u­m. 

Aðsóknin í griða­staði UN Women er gríð­ar­leg, að sögn sam­tak­anna, og eru hund­ruð kvenna á biðlista eftir að kom­ast að. Þau segja að til þess að byggja upp griða­staði UN Women þurfi aukið fjár­magn og þess vegna þurfi konur og stúlkur í Zaat­ari á hjálp að halda. 

Alvogen er bak­hjarl her­ferðar UN Women á Íslandi og gerði sam­tök­unum kleift að heim­sækja griða­staði UN Women í Zaat­ari flótta­manna­búð­un­um.

Sendu sms-ið KONUR í 1900 og veittu sýr­lenskum konum á flótta atvinnu, öruggt skjól og nýtt upp­haf.

Hér fyrir neðan má sjá mynd­band um stöðu kvenna í Zaat­ari búð­unum og frá heim­sókn UN Women á Íslandi, Evu Maríu og for­seta­frúar Íslands.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent