Gildi: Það var okkar mat að þetta verð endurspeglaði virði félagsins

Íslenskir lífeyrissjóðir, ásamt Arion banka, seldur hluti sína í Bakkavör í fyrra. Núna er félagið verðmetið á meira en þrefalt meira.

bakkavör 3.11.2017
Auglýsing

Davíð Rúd­ólfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Gildis líf­eyr­is­sjóðs, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans að það hafi verið mat sjóðs­ins, að það verð sem fékkst fyrir hlut sjóðs­ins í Bakka­vör hafi end­ur­speglað virði hans, miðað við þær for­sendur sem lágu fyrir á þeim tíma.

Bakka­vör verður skráð á markað í London á morgun en virði félags­ins er nú 1.043 millj­ónir punda, eða sem nemur 143 millj­örðum króna. 

Það er meira en þrefalt virði félags­ins á þeim tíma þegar bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir keyptu hlut­ina af Arion banka og íslenskum líf­eyr­is­sjóð­um. Þá var verð­mið­inn um 319 millj­ónir punda, eða sem nemur um 43 millj­örðum króna. Gildi var meðal hlut­hafa í BG12 slhf. sem seldi sinn hlut í Bakka­vör í byrjun árs 2016. Eins og fram kom á árs­fundi sjóðs­ins þann 26. apríl síð­ast­lið­inn nam inn­lausn Gildis í BG12 um 2,8 millj­örðum króna á árinu 2016 í kjöl­far sölu félags­ins á um 46% eign­ar­hlut í Bakka­vör. Það voru ýmsir mögu­leikar skoð­aðir á sínum tíma, þ.m.t. að halda lengur á eign­inni og að skrá félagið á mark­að. Nið­ur­staðan var hins vegar að hlutur BG12 í Bakka­vör var settur í opið sölu­ferli í umsjón breska bank­ans Barclays. Það var okkar mat að nið­ur­staða þess ferlis end­ur­spegl­aði virði félags­ins á þeim tíma,“ segir Davíð í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Auglýsing

Fleiri líf­eyr­is­sjóðir voru hlut­hafar í BG12 slhf., meðal annar Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og 

For­svar­menn Arion banka svör­uðu því einnig til, þegar Kjarn­inn beindi spurn­ingum til bank­ans varð­andi við­skiptin með hluti í Bakka­vör, að það hafi verið mat bank­ans að verðið væri ásætt­an­legt.

Óhætt er að segja Ágúst og Lýður hafi hagn­ast vel á skömmum tíma með eign­ar­hlut­ina í Bakka­vör, en þeir stofn­uðu félagið fyrir 31 ári síðan og halda nú um stjórn­ar­taumana ásamt Baupost Group.

Und­an­farin ár hafa ein­kennst af miklum átökum um eign­ar­hald­ið, en Ágúst og Lýður hafa komið vel út úr þessum við­skiptum og deil­um.

Þeir nýttu meðal ann­­ars fjár­­­fest­inga­­leið Seðla­­banka Íslands til að fá hag­­stætt gengi á fjár­­muni, sem síðan voru nýttir til þess, meðal ann­­ars, að kaupa hluta­bréf í Bakka­vör af íslenskum líf­eyr­is­­sjóð­­um.

Lýður Guðmundsson hefur staðið í ströngu eftir hrun fjármálakerfisins. Hann var meðal annars dæmdur í átta mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundna, í Exista-málinu. Dómur Hæstaréttar í málinu var kveðinn upp í ágúst 2014. Bjarnfreður Ólafsson hlaut einnig dóm í málinu, en hann sat um tíma í stjórn Kaupþings.

Þá teygir við­­skipta­veldi þeirra til fjölda félaga í skatta­­skjól­um, og komu fram upp­­lýs­ingar um þau í Pana­ma­skjöl­un­­um.

Í árs­skýrslu Bakka­varar fyrir árið 2016 er staða félags­ins sögð góð en heild­ar­tekjur félags­ins námu 1,7 millj­örðum punda, eða sem nemur um 232,9 millj­örðum króna. Árið 2015 námu tekj­urnar 1,64 millj­örðum punda, eða um 224,7 millj­örðum króna, og nam vöxt­ur­inn milli ára 3,6 pró­sent­u­m. 

Félagið hyggur á frek­ari land­vinn­inga utan heima­mark­að­ar­ins í Bret­landi, bæði í Banda­ríkj­unum og Kína, en þar hefur starf­semi félags­ins farið vax­andi að und­an­förnu, að því er segir í skýrsl­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent