Listamannalaunum úthlutað

Úthlutunarnefndir Launasjóðs listamanna hafa lokið störfum vegna úthlutana listamannalauna árið 2018. Alls fá 369 listamenn úthlutun.

Alþingi
Auglýsing

Úthlut­un­ar­nefndir Launa­sjóðs lista­manna hafa lokið störfum vegna úthlut­ana lista­manna­launa árið 2018. 

Frá þessu er greint á vef­síðu Rannís. 

Til úthlut­unar eru 1.600 mán­að­ar­laun en sótt var um 9.053 mán­uði. Árang­urs­hlut­fall sjóðs­ins er því 18 pró­sent, ef reiknað er eftir mán­uð­um. Alls bár­ust 852 umsóknir um starfs­laun frá ein­stak­lingum og hóp­um. Umsækj­endur voru sam­tals 1.529. Úthlutun fengu 369 lista­menn.

Auglýsing

Starfs­laun lista­manna eru 377.402 kr. á mán­uði sam­kvæmt fjár­lögum 2018. Um verk­taka­greiðslur er að ræða.

79 rit­höf­undar fá lista­manna­laun

Á meðal rit­höf­unda sem fá lista­manna­laun eru Eiríkur Örn Norð­da­hl, Hall­grímur Helga­son, Sjón og Þór­unn Jarla Valdi­mars­dóttir sem fá öll tólf mán­uði.

Andri Snær Magna­son, Dagur Hjart­ar­son, Guð­rún Eva Mínervu­dóttir og Vil­borg Dav­íðs­dóttir eru meðal þeirra sem fá úthlut­aða 9 mán­uði.

Alls fá 15 sviðs­lista­hópar lista­manna­laun og fær sviðs­lista­hóp­ur­inn 16 elskendur 22 mán­uði.

Úr launa­sjóði hönn­uða eru úthlut­aðir 50 mán­uð­ir. Hildur Björk Yeoman fær 6 mán­uði í lista­manna­laun og Guja Dögg Hauks­dótt­ir og Katrín Ólína Pét­urs­dóttir 4 mán­uði. Alls fá 18 hönn­uðir lista­manna­laun árið 2018.

49 tón­list­ar­flytj­endur fá úthlutun

76 mynd­list­ar­menn fá úthlutun frá 2 mán­uðum upp í 18 mán­uði en alls eru úthlut­aðir 435 mán­uð­ir. 18 mán­uði fá þau Har­aldur Jóns­son og Hulda Rós Guðna­dótt­ir.

Úr launa­sjóði tón­list­ar­flytj­enda eru úthlut­aðir 180 mán­uð­ir. Ágúst Ólafs­son fær 12 mán­uði í lista­manna­laun en alls fá 49 tón­list­ar­flytj­endur úthlut­un. 

Úr launa­sjóði tón­skálda eru 190 mán­uðir úthlut­að­ir. Örn Elías Guð­munds­son eða Mug­i­son fær þar 12 mán­uði og meðal þeirra sem fá 6 mán­uði eru Guð­rún Jóhanna Ólafs­dóttir og Kjartan Valde­mars­son. Píanó­leik­ar­inn Árni Heiðar Karls­son og tón­list­ar­mað­ur­inn Svavar Knútur Krist­ins­son fá 3 mán­uði í lista­manna­laun. 

Mennta­mála­ráð­herra skipar stjórn lista­manna­launa

Mennta­mála­ráð­herra skip­aði stjórn lista­manna­launa í októ­ber 2015. Skip­unin gildir til 1. októ­ber 2018. Stjórn hefur yfir­um­sjón með sjóð­unum og ber að sjá til þess að farið sé að lögum og regl­u­m. ­Stjórn­ina skipa Bryn­dís Lofts­dóttir for­mað­ur, Sig­ríður Sig­ur­jóns­dóttir vara­for­maður og Hlynur Helga­son.

Skipt­ing umsókna milli sjóða 2018 var eft­ir­far­andi:

Launa­sjóður hönn­uða: 50 mán­uðir voru til úthlut­un­ar. Sótt var um 360 mán­uði. Alls bár­ust 46 umsóknir í sjóð­inn frá 52 lista­mönn­um, 31 ein­stak­lings­um­sókn og 10 sam­starfs­verk­efni. Starfs­laun fá 18 ein­stak­ling­ar, 15 konur og 3 karl­ar.

Launa­sjóður mynd­list­ar­manna: 435 mán­uðir voru til úthlut­un­ar. Sótt var um 2.694 mán­uði. Alls bár­ust 236 umsóknir í sjóð­inn frá 245 umsækj­end­um, 222 ein­stak­lings­um­sóknir og 13 sam­starfs­verk­efni. Starfs­laun fá 76 ein­stak­ling­ar, 50 konur og 26 karl­ar.

Launa­sjóður rit­höf­unda: 555 mán­uðir voru til úthlut­un­ar. Sótt var um 2.310 mán­uði. Alls bár­ust 215 umsóknir í sjóð­inn frá 216 umsækj­end­um, 187 ein­stak­lings­um­sóknir og 5 sam­starfs­um­sókn­ir. Starfs­laun fá 79 ein­stak­ling­ar, 35 konur og 44 karl­ar.

Launa­sjóður sviðs­lista­fólks: 190 mán­uðir voru til úthlut­un­ar. Sótt var um 1.675 mán­uði. Sam­tals barst 131 umsókn í sjóð­inn frá 731 umsækj­anda, 673 lista­mönnum í 95 hópaum­sóknum og 58 ein­stak­ling­um. Starfs­laun fá alls 111 þátt­tak­end­ur, 62 kon­ur, 48 karlar og 1 ónefnd­ur. Fimmtán leik­hópar fengu starfs­laun, með 83 lista­mönnum í 104 hlut­verk­um, auk 7 lista­manna í ein­stak­lings­um­sóknum og sam­starfs­verk­efni.

Launa­sjóður tón­list­ar­flytj­enda: 180 mán­uðir voru til úthlut­un­ar. Sótt var um 996 mán­uði. Alls bár­ust 107 umsóknir í sjóð­inn frá 164 umsækj­end­um, 86 ein­stak­lings­um­sóknir og 14 sam­starfs­verk­efni. Starfs­laun fá 49 ein­stak­ling­ar, 25 konur og 24 karl­ar.

Launa­sjóður tón­skálda: 190 mán­uðir voru til úthlut­un­ar. Sótt var um 1.018 mán­uði. Alls bár­ust 117 umsóknir í sjóð­inn frá 121 umsækj­anda, 108 ein­stak­lings­um­sóknir og 17 sam­starfs­verk­efni. Starfs­laun fá 36 ein­stak­ling­ar, 8 konur og 28 karl­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent