Trump útnefnir sigurvegara Falsfréttaverðlaunanna

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Repúblíkanaflokkurinn hafa birt lista yfir sigurvegara Falsfréttaverðlauna sinna. CNN, New York Times og Washington Post meðal þeirra sem fá þann „heiður“.

elfa úr
Auglýsing

Repúblíkana­flokk­ur­inn birti í gær sig­ur­veg­ara í keppni Don­ald Trump sem ber nafnið Fake News Award eða Fals­frétta­verð­laun­in.



Þeir sem hlutu útnefn­ingar flokks­ins og for­set­ans eru meðal ann­arra Paul Krug­man, pistla­höf­undur hjá New York Times, CNN, Was­hington Post og New York Times.



Í blogg­færslu á heima­síðu flokks­ins, þar sem nið­ur­stöð­urnar voru birtar í gær, kemur fram að árið 2017 hafi verið ár hlut­drægni, ósann­gjarns frétta­flutn­ings og jafn­vel fals­frétta. „Rann­sóknir hafa sýnt að yfir 90 pró­sent af frétta­flutn­ingi um Trump er nei­kvæð­ur,“ segir í færsl­unni.

Auglýsing


Heima­síða Repúblíkana­flokks­ins hrundi stuttu eftir að for­set­inn birti tíst um verð­laun­in.



Krug­man var í fyrsta sæti fyrir að halda því fram þegar Trump var kjör­inn að efna­hag­ur­inn myndi aldrei jafna sig. Í öðru sæti er frétta­maður ABC Brian Ross sem hélt því rang­lega fram að Trump hefði beðið starfs­mann kosn­inga­bar­átt­unnar að hafa sam­band við Rússa. Frétta­stofan neydd­ist síðar til að leið­rétta frétt­ina, að atvikið hefði átt sér stað eftir kosn­ing­arn­ar. Ross var settur í leyfi.



Í þriðja sæti er frétta­stofa CNN fyrir að halda því fram að for­set­inn og sonur hans, Don­ald Trump yngri, hefðu haft aðgang að Wiki­Leaks gögnum tíu dögum áður en Wiki­Leaks birti gögn­in. Fréttin var leið­rétt.



Í fjórða sæti er umfjöllun TIME um að Trump hafi fjar­lægt brjóst­mynd af Martin Luther King yngri af skrif­stofu for­set­ans. Um var að ræða tíst frá blaða­manni TIME, sem sendi fleira en tylft tísta út síðar til að leið­rétta mis­tök sín og baðst afsök­un­ar.



Fimmta sætið fer til Was­hington Post fyrir að halda því fram að fundur for­set­ans í Pensacola á Flór­ída hafi verið mann­laus, en upp­selt hafi verið á fund­inn. Í rök­stuðn­ingi kemur fram að frétta­maður blaðs­ins hafi sent út mynd af fund­ar­staðnum löngu áður en fund­ur­inn hófst og þannig áður en fund­ar­gestir mættu. Frétta­mað­ur­inn baðst afsök­un­ar.



Minnst er á CNN í fleiri til­vik­um, fyrir að halda því fram að Trump hafi gefið skraut­fiskum of mikið af fæði í heim­sókn til jap­anska for­sæt­is­ráð­herr­ans jafn­vel þó að ráð­herr­ann hafi leitt fóð­ur­gjöf­ina. Þá hafi CNN haldið því fram að fyrr­ver­andi yfir­maður upp­lýs­inga­mála Hvíta húss­ins, Ant­hony Scara­mucci hafi fundað með Rússum, en dregið frétt­ina til baka og beðist afsök­un­ar.



Þá er minnst á Newsweek fyrir að halda því fram að for­seta­frú Pól­lands, Agata Korn­hauser-Du­da, hafi ekki tekið í hönd­ina á Trump sem og New York Times fyrir að halda því rang­lega fram á for­síðu að stjórn­völd undir stjórn Trump hafi falið skýrslu um lofts­lags­mál, sem var þvert á móti öllum aðgengi­leg.



Síð­ast í upp­taln­ing­unni er Rúss­lands sam­ráð­ið­nefnt sem aðal fals­fréttin og eitt mesta gabb sem fram­kvæmt hefur verið á banda­rísku þjóð­inni. „THERE IS NO COLL­USION“  eða það er ekk­ert sam­ráð segir í til­kynn­ing­unni.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent