Íslensk stjórnvöld hafa ekki innleitt tilskipun um endurskipulagningu og slitameðferð lánastofnana með fullnægjandi hætti. Þetta er niðurstaða rökstudds álits sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi frá sér í dag.
Í fréttatilkynningu frá ESA er haft eftir Högna Kristjánssyni stjórnarformanni ESA að eitt markmiða samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sé að fyrirtæki og einstaklingar njóti sömu réttinda og réttaröryggis. Grundvöllur þess sé fullnægjandi innleiðing og framkvæmd EES löggjafar á öllu svæðinu.
Tilskipunin sem ekki var innleidd með fullnægjandi hætti kveður á um að endurskipulagning eða slitameðferð lánastofnana ráðist af þeirri málsmeðferð, lögum og reglum sem gilda í heimaríkinu - þar sem lánastofnunin er skráð. Tilgreindar eru ákveðnar undantekningar frá þessari reglu og mat ESA er að þrjú undantekningarákvæði hafi ekki verið rétt innleidd. Eitt þeirra tiltekur rétt kröfuhafa til að halda því fram að endurskipulagningin eigi að fara fram samkvæmt lögum annars EES ríkis en heimaríkisins. Hin tvö varða greiðslujöfnunarsamninga og rétt til skuldajöfnuðar.
Rökstudda álitið sem Íslandi var sent í dag er annað þrepið í samningsbrotamáli gegn íslenska ríkinu og verði ekki brugðist við innan tveggja mánaða getur ESA vísað málinu til EFTA-dómstólsins.