Ísland verður með fjármálalæsishluta PISA könnunarinnar árið 2021. Um er að ræða valkvæðan hluta könnunarinnar fyrir 15 ára nemendur en tilgangurinn er að meta hæfni nemenda til að beita fjármálalegri þekkingu sinni og leikni í raunverulegum aðstæðum, þar með talið að taka fjármálalegar ákvarðanir.
Í tilkynningu frá mennta- og menningamálaráðuneytinu er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur ráðherra að fjármálalæsi sé grunnfærni sem sé mikilvæg í samfélagi okkar. „Ljóst er að gott fjármálalæsi skilar sér í betri ákvarðanatöku einstaklinga í fjármálum og stuðlar að fjármálastöðugleika. Ég tel brýnt að íslensk ungmenni taki þátt í fjármálalæsi í PISA-könnunni og því hefur þessi ákvörðun verið tekin,“ segir Lilja.
PISA er umfangsmikil alþjóðleg langtímarannsókn á vegum OECD á hæfni og getu 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúrufræði og læsi á stærðfræði. Auk þessara kjarnagreina geta löndin valið um að taka þátt í nokkrum viðbótarkönnunum sem eru annað hvort í formi spurningalista eða prófs. Fjármálalæsi er eitt af þessum valkvæðu sviðum og hefur verið í boði síðan árið 2012. 15-18 lönd hafa tekið þátt í þeim hluta PISA-könnunarinnar.
PISA könnunin sem nær til yfir 80 þjóða er eina alþjóðlega samanburðarrannsóknin á frammistöðu menntakerfisins sem fram fer hér á landi. Könnunin er lögð fyrir á þriggja ára fresti með mismunandi áherslur hverju sinni.