Segir B-listann leikara í leikriti sem þau sömdu ekki handritið að

Ingvar Vigur Halldórsson frambjóðandi til formanns Eflingar hefur áhyggjur af afskiptum Sósíalistaflokksins af stjórnarkjöri í félaginu. Skýtur föstum skotum á Gunnar Smára Egilsson stofnanda flokksins.

Ingvar Vigur Halldórsson og Sólveig Anna Jónsdóttir leiða A og B lista í stjórnarkjöri í Eflingu.
Ingvar Vigur Halldórsson og Sólveig Anna Jónsdóttir leiða A og B lista í stjórnarkjöri í Eflingu.
Auglýsing

Ingvar Vigur Hall­dórs­son fram­bjóð­andi til for­manns Efl­ingar fyrir A-list­ann, sem er listi upp­still­ing­ar­nefndar félags­ins, segir í aðsendri grein á Kjarn­anum að fólkið á B-list­anum séu leik­arar í leik­riti sem þau sömdu ekki hand­ritið að.

„Í kosn­ingum til stjórnar Efl­ingar í mars eru nú tveir list­ar. Það er hraust­leika­merki í stóru og sterku verka­lýðs­fé­lagi að fólk vilji gefa kost á sér til for­ystu. Ég get samt ekki neitað því, að mér finnst óþægi­legt til þess að vita að stjórn­mála­flokkur skuli standa á bak­við fram­boð B-list­ans,“ segir Ingvar Vig­ur.

Ingvar segir næstum 70 ár síðan tengsl milli hreyf­ing­ar­innar og ein­stakra stjórn­mála­flokka voru rof­in. Hann seg­ist enga athuga­semd gera við að ein­stak­lingar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni og for­ystu hennar séu virkir í stjórn­mála­starfi. Við séum örugg­lega öll rammpóli­tísk. Hins vegar hringi allar við­vör­un­ar­bjöllur þegar stjórn­mála­flokkur noti afl sitt - leynt og ljóst, til að berj­ast fyrir til­teknu fram­boði. Hann segir jafn­vel hægt að halda því fram að fram­boðið hafi komið fram af því að stjórn­mála­flokk­ur­inn lýsti eftir fram­bjóð­end­um.

Auglýsing

„Þegar við bæt­ist, að helsti for­ystu­maður við­kom­andi stjórn­mála­flokks, Sós­í­alista­flokks­ins, hefur ekki hikað við að setja fyr­ir­tæki í þrot og skilja starfs­fólkið eft­ir, fyr­ir­vara­laust án launa og rétt­inda og stétt­ar­fé­lögin og Ábyrgð­ar­sjóður launa eru látin sjá um rétt­indi starfs­fólks­ins eins og gerð­ist á síð­asta ári, þá er rétt að staldra við. Ekki var áhug­anum á kjörum og rétt­indum launa­fólks fyrir að fara þá.“

Ingvar segir fólkið á B-list­anum eflaust heilt í sínu, en hann sé hræddur um að þau geri sér ekki grein fyrir því að þau séu öll leik­arar í leik­riti sem þau sömdu ekki hand­ritið að. Það sé hættu­leg þróun „og ég vil með öllum mætti koma í veg fyrir það stjórn­mála­flokk­ur, hvort sem það er Sós­í­alista­flokkur Gunn­ars Smára Egils­sonar eða ein­hver ann­ar, nái tökum á þessu félagi sem mér þykir svo vænt um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent