Vilhjálmur Birgisson kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins

Komandi kjaraviðræður á íslenskum vinnumarkaði verður stærsta verkefni nýkjörins formanns Starfsgreinasambands Íslands að eigin mati. Vilhjálmur Birgisson hafði betur gegn Þórarni G. Sverrissyni með tíu atkvæðum í formannskjörinu.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er nýr formaður Starfsgreinasambandsins.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er nýr formaður Starfsgreinasambandsins.
Auglýsing

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, var kjör­inn for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins á þingi sam­bands­ins sem nú stendur yfir. Tekur hann við for­mennsk­unni af Birni Snæ­björns­syni sem hefur verið for­maður sam­bands­ins í tíu ár.

Vil­hjálmur hlaut 53,85 pró­sent atkvæða eða 70 af þeim 130 atkvæðum sem greidd voru. Mót­fram­bjóð­andi hann, Þór­ar­inn G. Sverr­is­son, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins Öld­unn­ar, fékk 60 atkvæði, eða 46,15 pró­sent greiddra atkvæða.

Auglýsing

Kjara­samn­ings­við­ræður eru stærsta verk­efnið fram undan að mati Vil­hjálms. Samn­ingar verða lausir í októ­ber. Í sam­tali við Vísi segir hann að það sé „sam­fé­lag­inu til ævar­andi skammar að lág­marks­laun dugi ekki fyrir nauð­synj­u­m.“

­Tölu­verðar deilur hafa verið innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar und­an­far­ið. Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, hefur til að mynda full­yrt að til­­laga Vil­hjálms og Ragn­­ars Þórs Ing­­ólfs­­sonar for­­manns VR, um að draga tíma­bundið úr mót­fram­lagi atvinn­u­rek­enda í líf­eyr­is­­sjóði í upp­­hafi kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins, hefði kostað launa­­fólk tíu millj­­arða króna á hverjum árs­fjórð­ungi og skilað sam­svar­andi upp­­hæð til atvinn­u­rek­enda.

Bæði Vil­hjálmur og Ragnar Þór sögðu sig úr mið­­stjórn ASÍ í vetr­­ar­­lok 2020 vegna deilna um hvað skyldi gera til að bregð­­ast við áhrifum veiru­far­ald­­ur­s­ins, en báðir voru þeir til­­­búnir að fall­­ast á að að mót­fram­lög atvinn­u­rek­enda í líf­eyr­is­­sjóði yrðu lækkuð úr 11,5 pró­­sentum niður í 8 pró­­sent, tíma­bund­ið.

Vil­hjálmur sagði í sagði í sam­tali við Vísi eftir að nið­ur­stöður for­manns­kjörs­ins lágu fyrir að bar­átta í verka­lýs­hreyf­ing­unni sé nauð­syn­leg. „Auð­vitað þurfum við svo að ein­henda okkur í það, þegar við höfum kom­ist að nið­ur­stöðu um það hvaða leiðir við viljum fara, þurfum við að taka höndum saman og fara sem ein öflug stór heild með hags­muni verka­fólks að leið­ar­ljósi.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki