Félag grunnskólakennara skrifaði undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga um miðjan dag.
Á vef Kennarasambands Íslands kemur fram að samningurinn gildi í ár, frá fyrsta apríl næstkomandi til 31. mars á næsta ári.
Helstu atriði samningsins eru meðal annars:
Launabreytingar
Horfið er frá vinnumati
Undirbúningur hverrar kennslustundar er aukinn
Tími til annarra faglegra starfa er minnkaður
Nýr menntunarkafli
Greitt er fyrir sértæk verkefni
„Nýi kjarasamningurinn fer nú í kynningu og verður fundað með trúnaðarmönnum FG næstu dagana. Félagsmenn í FG fá sent kynningarefni um nýja samninginn þegar líður á morgundaginn. Með fyrirvara um samþykki kjörstjórnar er áformað að rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hefjist klukkan 14 föstudaginn 16. mars og standi til klukkan 14 miðvikudaginn 21. mars næstkomandi. Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Nánari upplýsingar verða birtar innan skamms,“ segir á vef Kennarasambandsins.