Konur gagnrýna dagskrá Lagadagsins – telja #metoo enn eiga erindi

Vegna umræðu í kringum #metoo-byltinguna í réttarvörslukerfinu komu nokkrar konur með tillögu að málstofu fyrir Lagadaginn 2018. Þegar dagskráin var kynnt bólaði ekkert á #metoo.

Metoo - Dómsalur
Auglýsing

Nokkur gagn­rýni hefur látið á sér kræla varð­andi dag­skrá Laga­dags­ins 2018 sem hald­inn verður þann 27. apríl næst­kom­andi á vegum Lög­manna­fé­lags Íslands, Lög­fræð­inga­fé­lags Íslands og Dóm­ara­fé­lags Íslands­. Laga­dag­ur­inn hefur verið hald­inn frá árinu 2008 og verið stærsti við­burður árs­ins meðal lög­fræð­inga með á bil­inu 400 til 500 þátt­tak­end­ur. Nú verður hann hald­inn í tíunda sinn.

Dagný Aradóttir Pind Mynd: Facebook-síða DagnýjarNokkrar konur höfðu sam­band við nefnd sem sér um skipu­lagn­ingu Laga­dags­ins og báðu um að sér­stök mál­stofa yrði við­höfð um #metoo-um­ræðu. Þegar dag­skráin var síðan kynnt bólaði ekk­ert á slíkri umræðu eða mál­stofu og sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans þá voru svörin á þá leið að mál­efnið myndi ekki trekkja nægi­lega vel að og of langt væri síðan yfir­lýs­ing kvenna innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins hefði verið til að eiga erindi á við­burð­inn. 

Dagný Ara­dóttir Pind er ein þeirra sem gagn­rýnt hefur dag­skrána. Hún segir að mál­efnið eigi fullt erindi og rætt hafi verið innan stétt­ar­innar síð­ustu mán­uði að mikil þörf væri á því að ræða #metoo enn frek­ar. „Við áttum okkur allar á því hvernig brans­inn er en hann er sögu­lega mjög karllæg­ur,“ segir hún.

Auglýsing

Yfir­lýs­ingin engu breytt

Dagný seg­ist vera ósam­mála þess­ari túlk­un. Hún segir að #metoo-um­ræður skipti enn máli, sér­stak­lega í ljósi þess að margar konur hafi ekki viljað skrifa undir yfir­lýs­ing­una á sínum tíma eða deila sögum vegna smæðar sam­fé­lags­ins. „Svona menn­ingu verður ekki umturn­að, einn, tveir og tíu,“ bætir hún við.

Hún segir að lög­fræð­ingar vilji iðu­lega stíga var­lega til jarðar og ræða hlut­ina út frá ýmsum hlið­um. Þess vegna væri Laga­dag­ur­inn til­val­inn vett­vangur enda mæti hund­ruð lög­fræð­inga á við­burð­inn. Dagný bendir jafn­framt á að #metoo sé enn í umræð­unni víðs vegar um heim­inn og enn sé full þörf á henni innan stétt­ar­inn­ar. „Fyrr eða síðar verður að taka þetta almenni­lega fyr­ir. Það er ekki hægt að hunsa þetta,“ segir hún. Hennar til­finn­ing er nefni­lega sú að yfir­lýs­ingin á sínum tíma hafi engu breytt og að #metoo-um­ræður séu áfram­hald­andi verk­efni í sam­fé­lag­inu öllu.

Skipu­leggj­endur til­búnir að hlusta á gagn­rýni

Eyrún Inga­dótt­ir, starfs­maður félags­deildar hjá Lög­manna­fé­lagi Íslands, segir að gríð­ar­lega mikið af til­lögum hafi borist fyrir Laga­dag­inn. Hún segir ástæð­una fyrir því að ekki hafi verið tekin sú ákvörðun að hafa #metoo-um­ræður á dag­skránni vera að þau hafi talið að umræð­unni væri lokið og að um gam­alt mál væri að ræða.

Hún tekur þó fram að skipu­leggj­endur séu til­búnir að hlusta á gagn­rýni, að þeir séu opnir fyrir breyt­ingum og segir hún að málið sé í athug­un. Hún seg­ist bjart­sýn á að breyt­ingar verði á dag­skrá vegna óánægj­unn­ar.

Eyrún segir að mál­efnið sé mjög þarft en að það reyn­ist hæg­ara sagt en gert að þjóna öllum og að koma öllum þeim til­lögum að sem ber­ast. „Á Laga­deg­inum er verið að fjalla um mjög lög­fræði­leg efni, svo því sé haldið til haga. Og það koma bæði karlar og konur að dag­skránn­i,“ segir hún.

Nú er unnið að því að bæta við einni mál­stofu, að sögn Eyrún­ar. Ef það gengur þá munu verða #metoo-um­ræður á Laga­deg­inum 2018.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent