Lífeyrissjóðir óska eftir sakamálarannsókn á stjórnendum United Silicon

Fimm lífeyrissjóðir sem fjárfestu í kísilmálmverksmiðju United Silicon hafa kært nokkur tilvik þar sem grunur leikur á að fyrrverandi framkvæmdastjóri og eftir atvikum aðrir stjórnendur, stjórnarmenn og starfsmenn, hafi brotið lög.

Magnús.jpg
Auglýsing

Stjórnir fimm líf­eyr­is­sjóða hafa lagt fram kæru til hér­aðs­sak­sókn­ara þar sem óskað er eftir það að emb­ættið taki til rann­sóknar nokkur alvar­leg til­vik sem grunur leikur á að feli í sér refsi­verð brot af hálfu Magn­úsar Ólafs Garð­ars­son­ar, fyrrum fram­kvæmda­stjóra og stjórn­ar­manns United Sil­icon hf., og eftir atvikum ann­arra stjórn­enda, stjórn­ar­manna og starfs­manna félags­ins. Áður hafði stjórn United Sil­icon og Arion banki, stærsti kröfu­hafi félags­ins, sent kærur vegna gruns um refsi­verða hátt­semi Magn­úsar til yfir­valda. Þetta er því þriðja kæran sem berst vegna gruns um brot hans.

­Sjóð­irnir sem um ræðir eru Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Festa, Eft­ir­launa­sjóður íslenskra atvinnu­flug­manna, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna Bún­að­ar­banka Íslands og Brú-líf­eyr­is­sjóð­ur.

Í til­kynn­ingu frá sjóð­unum seg­ir: „Kærendur telja að blekk­ingum hafi verið beitt og átt hafi verið við áætl­anir og upp­lýs­ingar í þeim til­gangi að fegra stöðu félags­ins og leyna þeim kerf­is­bundnu auðg­un­ar­brotum sem virð­ast hafa verið stunduð í skjóli félags­ins. Ítar­legar athug­anir á bók­haldi félags­ins bendi til þessa. Grunur sé um skjala­fals, fjár­svik í tengslum við kaup á bún­aði, inn­heimtu til­hæfu­lausra reikn­inga og mis­notkun á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.  Þá telja kærendur að í ljósi þess sem nú er komið fram að rann­saka þurfi hvort fjár­munir félags­ins United Sil­icon hf. hafi mögu­lega verið nýtt­ir, með ólög­mætum hætti, til að fjár­magna aðkomu Magn­úsar Garð­ars­son­ar, eða aðila honum tengd­um, að verk­efn­in­u.“

Hægt er að lesa kæruna í heild sinni hér.

Auglýsing
Kæran er lögð fram að feng­inni nið­ur­stöðu lög­fræði­á­lits Stef­áns Árna Auð­ólfs­son­ar, lög­manns hjá LMB Mandat, um stöðu sjóð­anna vegna fjár­fest­inga sem tap­ast við gjald­þrot United Sil­icon. sjóð­irnir ósk­uðu eftir lög­fræði­á­lit­inu til þess að fá úr því skorið til hvaða aðgerða sjóð­irnir gætu gripið til að verja hags­muni sjóð­fé­laga. „Með kærunni er leitað atbeina emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara vegna hags­muna þess­ara aðila í tengslum við lög­reglu­rann­sókn á meintu mis­ferli í rekstri félags­ins United Sil­icon hf. Kæran fylgir í kjöl­far kæru félags­ins sjálfs og Arion banka á hendur fram­kvæmda­stjór­an­um. Sjóð­irnir telja að mögu­leg brot hans snúi að hluta til með öðrum hætti að hags­munum þeirra en félags­ins sjálfs og bank­ans.  Kærendur telja einnig að þeir hafi sjálf­stæða hags­muni af því að kæra hin grun­uðu brot.“

 

Í kærunni er bent á að for­svars­menn kís­il­verk­smiðj­unnar hafi sóst eftir veru­legu fjár­magni frá kærendum auk þess sem miklir almanna­hags­munir hafi verið tengdir upp­bygg­ing­unni í Helgu­vík. „Svo virð­ist sem fyrrum stjórn­ar­menn, sem flestir voru tengdir fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, sem og nán­ustu sam­starfs­menn, hafi lítið sinnt athafna- og aðgæslu­skyldum sínum svo sem hvað varðar aðskilnað starfa og upp­á­skrift reikn­inga.“

Í kærunni segir að miðað við fram­komnar upp­lýs­ingar þá virð­ist sem stjórn United Sil­icon hafi „falið Magn­úsi Ólafi Garð­ars­syni nær ótak­markað umboð til að ráð­stafa fjár­munum og til að skuld­binda félag­ið. Því verður að fara fram á rann­sókn á þeim þætti máls­ins.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent