Starbucks lokar dyrum sínum til að fræða starfsfólk sitt um kynþáttafordóma

Starbucks lokar kaffihúsum sínum heilan dag í maí til að fræða starfsfólk sitt um kynþáttafordóma og mismunun í garð minnihlutahópa.

starbucks2
Auglýsing

Átta þús­und kaffi­hús Star­bucks í Banda­ríkj­unum munu loka þann 29. maí næst­kom­andi. Starfs­mönnum kaffi­húsa­keðj­unn­ar, öllum 175 þús­und, verður skylt að sitja nám­skeið um kyn­þátta­for­dóma og mis­munun í garð minni­hluta­hópa. Lok­unin á sér nokkra for­sögu en í síð­ustu viku var tveimur blökku­mönnum vísað út af kaffi­húsi Star­bucks í Phila­delphia í Penn­syl­vaniu. Menn­irnir voru að bíða eftir við­skipta­fé­laga sínum og höfðu ekki keypt sér neitt inni á kaffi­hús­inu. Þeir báðu um að fá að nota kló­settið en var sagt að aðeins við­skipta­vinir fengju aðgang að kló­sett­un­um. Afgreiðslu­stúlkan bað þá að fara en þeir sögð­ust vera enn þá að bíða eftir við­skipta­fé­laga sín­um. Þá hringdi afgreiðslu­daman í lög­regl­una sem kom og hand­tók menn­ina. 

Við hand­tök­una varð uppi í fótur og fit en ung kona sem einnig var gestur á kaffi­hús­inu tók upp atvikið á sím­ann sinn og deildi því á Twitt­er. Á mynd­band­inu má sjá annan gest spyrja lög­reglu­menn­ina hvað menn­irnir hefðu gert til að verð­skulda hand­tök­una. Lög­reglu­menn­irnir svör­uðu engu og færðu menn­ina á lög­reglu­stöð­ina í járn­um. Þeir voru í haldi lög­reglu til um klukkan tvö eftir mið­nætti en Star­bucks kærði þá ekki.



Auglýsing

Mynd­bandið af hand­tök­unni hefur vakið mikla athygli og hafa margir hótað að hætta við­skiptum við Star­bucks. Fjöl­menn mót­mæli hafa verið bæði á net­inu og víða um Banda­rík­in. Myllu­merkið #Boycott­Star­bucks hefur náð nokkru flugi á sam­fé­lags­miðl­um. Meiri­hluti tíst­anna er nei­kvæður eða hlut­laus.

Fyr­ir­tækið baðst opin­ber­lega afsök­unar á Twitter á laug­ar­dag­inn. For­stjóri Star­bucks, Kevin R. John­son, ferð­að­ist til Phila­delp­hiu til að biðja menn­ina afsök­unar í per­sónu. Á mánu­dag­inn greindi Star­bucks frá því að afgreiðslu­stúlkan sem hringdi á lög­regl­una væri ekki lengur að vinna hjá fyr­ir­tæk­inu.

Johns­son segir að fyr­ir­tækið leið­beini starfs­fólki sínu að hringja á lög­regl­una þegar eitt­hvað bjáti á, ein­hver sé með læti eða með ógn­andi til­burði. Ekk­ert af þessu hafi hins vegar átt við í þessu til­viki og því hafi afgreiðslu­stúlkan verið látin fara.



Star­bucks hefur verið virkt í vit­und­ar­vakn­ingu um mál­efni blökku­manna í gegnum tíð­ina en árið 2015 voru starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hvattir til að skrifa „Race Together“ á kaffi­mál­in, eða „kyn­þættir sam­ein­að­ir“. Til þess að bregð­ast við þessu atviki hefur Star­bucks því gefið út frétta­til­kynn­ingu um að öllum kaffi­húsum þeirra verði lokað 29. maí. Starfs­fólk kaffi­hús­anna mun sitja nám­skeið um kyn­þátta­for­dóma og mis­munun í garð minni­hluta­hópa. Að nám­skeið­inu koma stofn­anir sem barist hafa gegn kyn­þátta­for­dómum í gegnum tíð­ina. Að sögn Star­bucks verður nám­skeiðið aðgengi­legt fyrir önnur fyr­ir­tæki í fram­tíð­inni, vilji þau einnig fræða starfs­fólk sitt um kyn­þátta­for­dóma. 

Atvik sem þetta getur verið dag­legt brauð fyrir blökku­fólk í Phila­delpiu. Í hverf­inu, Ritten­house Squ­are, sem atvikið átti sér stað eru um þrjú pró­sent íbúa blökku­fólk en tveir þriðju af þeim sem lög­reglan hand­tekur í hverf­inu eru svart­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent