BrewDog opnar í Reykjavík

Skoska brugghúsið BrewDog mun opna á horni Frakkastígs og Hverfisgötu í sumar.

BrewDog aðalmynd
Auglýsing

Brugg­húsið BrewDog mun opna á Íslandi snemma í sumar á horni Frakka­stígs og Hverf­is­götu. BrewDog er skoskt hand­verks­brugg­hús sem bruggar og selur gæða­bjór. Þór­hallur Við­ars­son er fram­kvæmd­ar­stjóri BrewDog Reykja­vík og segir hann að það hafi staðið til í nokkurn tíma að fá BrewDog til Íslands.

„Það er nokkuð síðan að BrewDog gaf það út opin­ber­lega að þeir hefðu auga­stað á að opna bar á Ísland­i.“ segir Þór­hall­ur. Að komu BrewDog til Íslands standa Þór­hall­ur, Eyþór Mar Har­alds­son, mat­reiðslu­maður og Róbert Ólafs­son eig­andi For­rétta­bars­ins.

„Það voru nokkrir búnir að hafa þetta á teikni­borð­inu í nokkurn tíma, ég kem svo inn í ferlið í byrjun febr­ú­ar.” segir Þór­hall­ur. Ásamt þeim Þór­halli, Eyþóri og Róberti standa fjár­festar og bjórá­huga­menn að opn­un­inni.

Auglýsing
BrewDog var stofnað árið 2007 í Skotlandi af James Watt og Martin Dickle. Þeir hafa farið nokkuð sér­staka leið við að byggja fyr­ir­tækið upp, en starf­semin bygg­ist á hóp­fjár­mögn­un. BrewDog hefur slegið heims­met í hóp­fjár­mögnun en nú eiga yfir 70 þús­und hlut­hafar í fyr­ir­tæk­inu. Fyr­ir­tækið hefur verið á lista Sunday Times yfir 100 ört vax­andi fyr­ir­tæki í heim­inum sex ár í röð, enda hefur fyr­ir­tækið vaxið á ógnar hraða síð­ustu ár. Þór­hallur segir að það séu undir tíu manns sem koma að fjár­mögnun stað­ar­ins hér á landi.

Brewdog

Mikil áhersla lögð á bjór og mat

Stað­ur­inn verður ekki aðeins bar heldur einnig veit­inga­hús. „Það er verður lögð mikil áhersla á bjór og mat, og pörun þar á milli.“ segir Þór­hall­ur. Þeir stefna á að vera með ívið stærri og flott­ari veit­inga­stað en tíðkast á börum BrewDog í öðrum lönd­um.

„Við setjum stefn­una hærra hvað varðar mat og úrval og verðum með bæði kjöt, fisk, græn­met­is­rétti og vegan­rétt­i.“ segir Þór­hall­ur.

Á BrewDog verða 20 bjórar á krana en stefnt verður að því að hafa 40 pró­sent af þeim krönum undir gesta­bjóra, eða bjóra sem ekki eru brugg­aðir af BrewDog. Þór­hallur segir að hluti af þeim verði fyrir íslenska bjóra en mikil gróska hefur verið í brugg­menn­ingu hér á landi síð­ast­liðin ár.

 „Við viljum setja fók­us­inn á öll þessi litlu brugg­hús sem eru ekki kom­inn á þann stað að hafa mikla dreif­ing­u.“ segir Þór­hall­ur. ­Mikil velta verður á bjórúr­val­inu segir Þór­hallur og þó fólk komi í hverri viku eigi að vera eitt­hvað nýtt í boði hverju sinni.

BrewDog á og rekur 46 bari víðs­vegar um heim­inn og á árinu 2017 brugg­uðu þau yfir 343 þús­und hektólítra af bjór. Fyr­ir­tækið bruggar bjór­inn ekki aðeins í Skotlandi þar sem höf­uð­stöðv­arnar eru í Ellon, heldur hófst fram­leiðsla í Ohio í Banda­ríkj­unum á árinu 2017. Þeir Watt og Dickle stefna á að opna einnig verk­smiðju í Ástr­alíu á næstu miss­er­um.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent