Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag að Byko hafi framið alvarleg brot á samkeppnislögum og hækkaði álagða sekt í 400 milljónir króna. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafði talið 65 milljóna króna sekt hæfilega.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.
Jafnframt kemur fram að aðdragandi málsins sé sá að í maí 2015 hafi Samkeppniseftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að Byko hafi brotið gegn samkeppnislögum og EES-samningnum með umfangsmiklu ólögmætu samráði við gömlu Húsasmiðjuna. Um hafi verið að ræða verðsamráð á mikilvægum byggingavörum. Málið hafi hafist þegar Múrbúðin snéri sér til Samkeppniseftirlitsins og gerði grein fyrir tilraunum Byko og gömlu Húsasmiðjunnar til að fá Múrbúðina til að taka þátt í hinu ólögmæta samráði. Taldi Samkeppniseftirlitið að um alvarleg brot væri að ræða og lagði 650 milljóna króna sekt á Norvik, móðurfélag Byko.
Norvik og Byko kærðu ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í október 2015 komst nefndin að þeirri niðurstöðu að Byko hefði tekið þátt í ólögmætu verðsamráði og brotið gegn samkeppnislögum. Hins vegar féllst nefndin ekki á að ákvæði EES-samningsins hefðu verið brotin. Einnig taldi nefndin að brot Byko hafi ekki verið jafn alvarleg og Samkeppniseftirlitið lagði til grundvallar. Taldi nefndin því hæfilegt að lækka sekt Byko úr 650 í 65 milljónir króna.
Segir í tilkynningunni að samkvæmt samkeppnislögum sé Samkeppniseftirlitinu falið að meta hvort þeir almannahagsmunir, sem felast í virkri samkeppni, kalli á að úrskurðir áfrýjunarnefndar samkeppnismála séu bornir undir dómstóla. Jafnframt sé Samkeppniseftirlitinu falið að beita samkeppnisreglum EES-samningsins. Samkeppniseftirlitið hafi því höfðað mál fyrir héraðsdómi þar sem eftirlitið byggði á því að áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefði túlkað EES-samninginn með röngum hætti. Einnig hefði nefndin ekki lagt rétt mat á alvarleika brota Byko og sekt nefndarinnar gæti ekki tryggt fullnægjandi varnaðaráhrif. Slík áhrif séu mikilvæg til að stuðla að því að fyrirtæki raski ekki samkeppni, neytendum til tjóns. Samkeppniseftirlitið hafi krafist þess að sekt Byko yrði hækkuð.
„Með dómi sínum í dag féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á að brot Byko hefðu verið alvarleg og hækkaði sekt félagsins í 400 mkr. Að mati héraðsdóms geti það ekki „verið nokkrum vafa undirorpið að um var að ræða samráð í skilningi samkeppnisréttar.“ Með háttsemi sinni hafi félögin haldið uppi vöruverði og bætt framlegð sína á kostnað viðskiptavina. Í dómnum segir að sekt áfrýjunarnefndar hafi verið „of lág. Hér hefur helst þýðingu að um alvarlegt brot var að ræða á markaði milli markaðsráðandi fyrirtækja sem framin voru í þeim tilgangi að styrkja stöðu þeirra á kostnað neytenda. Var með því brotið gegn mikilvægum hagsmunum þorra almennings.“ Einnig féllst dómurinn á það að ákvæði EES-samningsins hefðu verið brotin.“