Landsliðsstrákarnir hafa verið duglegir að senda þakkir til stuðningsmanna og ástvina á samfélagsmiðlum frá því þeir gerðu 1-1 jafntefli við Argentínu í ótrúlegum fyrsta leik liðsins á heimsmeistaramótinu í gær. Alfreð Finnbogason skoraði mark íslenska liðsins og Hannes Halldórsson markmaður varði víti frá hinum magnaða knattspyrnumanni Lionel Messi.
Gott stig i gær⚽️ gledilegan 17 juni🎉🎉🎉🇮🇸 pic.twitter.com/9MzTCeN2uw
— Aron Einar (@ronnimall) June 17, 2018