Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði hefur verið ráðinn til starfa sem sérfræðingur í vinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum hjá Eflingu-stéttarfélagi. Þetta kemur fram í nýbirtri fréttatilkynningu frá félaginu.
Samkvæmt tilkynningunni mun nýtt starf Stefáns fela í sér umsjón með rannsóknar-og greiningarvinnu auk þess sem hann verður formanni og stjórnar til ráðgjafar um stefnumótun í kjaramálum og á tengdum sviðum.
Stefán lauk doktorsprófi í félagsfræði árið 1982 frá Oxford-háskóla í Englandi og hefur verið fastráðinn við Háskóla Íslands síðan 1970. Af ritum hans má nefna bækurnar Hagvöxtur og hugarfar frá 1996 og Íslenska leiðin frá 1999 en nýjasta rit hans, samið með Arnaldi Sölva Kristjánssyni, er Ójöfnuður á Íslandi sem kom út á þessu ári.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði í tilefni ráðningarinnar: „Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði: „Það eru ekki margir fræðimenn sem hafa sérhæft sig í aðstæðum hinna verst settu á Íslandi og að einn sá fremsti þeirra sé kominn til starfa hjá Eflingu er gríðarlegur styrkur. Rannsóknir Stefáns á ójöfnuði eru sláandi og segja allt aðra sögu en málflutningur SA og ASÍ. Ég mun leggja mikla áherslu á baráttuna gegn ójöfnuði í komandi kjarasamningum og að hafa Stefán mér við hlið í þeirri baráttu verður ómetanlegt.“