Húsaleiga hækkað hraðar en fasteignaverð

Hækkun á húsaleigu var nær þreföld samsvarandi hækkun á fasteignaverði milli maímánuða 2016 og 2017.

Fasteignaverð og leiguverð helst ekki alltaf saman.
Fasteignaverð og leiguverð helst ekki alltaf saman.
Auglýsing

Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 7,2% milli­ maí­mán­uða í ár og í fyrra, sem er rúm þre­föld hækkun á fast­eigna­verð­i í fjöl­býli fyrir sama tíma­bil. Mest hefur hækk­unin verið í Vest­urbæ Reykja­vík­ur, en þar hefur leigu­verð á 4-5 her­bergja íbúðum auk­ist um rúman fjórð­ung.

Auglýsing


Í nýrri hag­sjá Lands­bank­ans er farið yfir fast­eigna­mark­að­inn og mun­inn á leigu- og kaup­verði síð­ustu ára.  Þar er vísi­tala leigu­verðs byggð á þing­lýstum samn­ingum og er því reiknuð á sama hátt og leigu­vísi­tala Þjóð­skrár Íslands. Lands­bank­inn skiptir svo íbúð­ar­hús­næði í flokka eftir stað­setn­ingu og her­bergja­fjölda.

Mis­ræmi milli­ ­kaup-og ­leigu­verðs

­Sam­kvæmt hag­sjánni hafa breyt­ingar á leigu- og kaup­verði fjöl­býlis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fylgst nokkuð náið að frá árinu 2011 þegar Þjóð­skrá birti vísi­tölu leigu­verðs. Um mitt sumar 2015 skildu hins vegar leið­ir, en vísi­tala leigu­verðs lækk­aði veru­lega og dróst aftur úr vísi­tölu kaup­verðs. Slík hefur þró­unin verið allt þar til í júní í fyrra þegar veru­lega dró úr hækk­unum kaup­verðs. Síðan hefur dregið saman með þessum stærðum og leigu­verð hækkað hraðar en kaup­verð íbúða. 

Fjórð­ungs­hækkun í Vest­urbæ

Hæstu leigu­verðin má finna í Reykja­vík vestan Reykja­nes­braut­ar, en þar hefur leigu­verð stærri íbúða einnig hækkað einna mest á land­inu. Milli Reykja­nes­brautar og Kringlu­mýr­ar­brautar hækk­aði leiga á þriggja her­bergja íbúðum um 19,7%, en vestan Kringlu­mýr­ar­brautar auk Sel­tjarn­ar­ness hækk­aði leiga á 4-5 her­bergja íbúðum um 26,1%. Til sam­an­burðar lækk­aði leigu­verð á þriggja her­bergja íbúðum í Breið­holti um 5,1% og leiga á 4-5 her­bergja íbúðum í Garðabæ og Hafna­firð­i ­lækk­aði um 6,5%. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent