Nýjar leiðir lítið notaðar í greiðslumiðlun

Lítill sem enginn áhugi er á nýjum leiðum í greiðslumiðlun meðal útflutningsfyrirtækja, en Íslandsstofa telur að hann muni aukast í náinni framtíð.

Ísak Kári Kárason og Ingólfur Sveinsson, höfundar skýrslunnar.
Ísak Kári Kárason og Ingólfur Sveinsson, höfundar skýrslunnar.
Auglýsing

Útflutn­ings­fyr­ir­tæki á Íslandi hafa lítið sem ekk­ert nýtt sér nýjar leiðir í greiðslu­miðl­un, en þróun í þeim geira hefur verið nokkuð hæg hér­lend­is. Þó er lík­legt að það muni breyt­ast með nýrri lög­gjöf Evr­ópu­sam­bands­ins, sam­kvæmt nýlegri skýrslu Íslands­stofu.

Skýrslan, sem ber heitið „Banka-og milli­færslu­kostn­aður íslenskra útflutn­ings­fyr­ir­tækja,“ tók við­töl við 41 fyr­ir­tæki hér á landi sem starfa að nokkru eða öllu leyti í útflutn­ingi á vörum og þjón­ustu. Af við­töl­unum að dæma töldu fyr­ir­tækin banka­kostnað sinn vera óveru­legan hluta af árlegri veltu fyr­ir­tæk­is­ins, eða í mesta lagi 0,1%. 

Auglýsing

Sömu­leiðis sögð­ust engin þeirra hafa nýtt sér þjón­ustu fjár­tækni­fyr­ir­tækja, en að sögn skýrslu­höf­unda er lík­legt að það muni breyt­ast í kjöl­far inn­leið­ingar svo­kall­aðra PSD2-laga Evr­ópu­sam­bands­ins. 

Útskýr­ing á breyt­ingum vegna PSD2 lög­gjaf­ar­inn­ar. Heim­ild: Star­l­ing Bank.

Kjarn­inn hefur áður fjallað um PSD2, en lögin urðu að umfjöll­un­ar­efni nýjasta tíma­rits Pen­inga­inn­viða Seðla­bank­ans. Sam­kvæmt Seðla­bank­anum gætu lögin leitt til lækk­unar á verði fjár­mála­þjón­ustu auk fleiri greiðslu­mögu­leika en eru til núna í hefð­bund­inni banka­starf­sem­i. 

Eft­ir­bátur Norð­ur­landa

Í skýrslu Íslands­stofu er einnig vikið að þróun í fjár­tækni­lausnum hér­lendis í alþjóð­legu sam­hengi, en Ísland er eina nor­ræna ríkið sem hefur ekki sam­ein­ast um eina sam­eig­in­lega greiðslu­miðlun í gegnum app sem allir bankar lands­ins nota. Sömu­leiðis hafi fjár­tæknin þró­ast hægt hér á landi, en við­skipta­módel fjár­mála­fyr­ir­tækja á Íslandi sé almennt sú sama og fyrir hrun. 

Skýrslu­höf­undar leiða að því líkum að meg­in­á­stæða þess sé að fjár­mála­kerfið hér­lendis hafi verið skil­virk­ari fyrir vegna mið­lægrar stjórn­unnar Reikni­stofu bank­anna ásamt Greiðslu­veit­unn­i.  Þar sem fyr­ir­tækin tvö hafi nú þegar skapað skil­virka og not­enda­væna banka­þjón­ustu hafi ekki verið jafn­mikil eft­ir­spurn eftir fjár­tækni­fyr­ir­tækjum líkt og í öðrum lönd­um. 

­Þrátt fyrir til­tölu­lega hæga þróun á Íslandi hingað til telur Íslands­stofa að fjár­mála­þjón­usta muni breyt­ast tölu­vert með inn­leið­ingu PSD2-lag­anna, neyt­endum og útflutn­ings­fyr­ir­tækjum til hags­bóta. Lögin gætu þó verið erf­iður biti fyrir hefð­bundna banka­starf­semi þar sem þrengt yrði að rekstri þeirra auk þess sem erf­ið­ara yrði fyrir þá að skera sig úr í flóru fjöl­breyttra fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent