Sænska verslanakeðjan H&M seldi fatnað fyrir ríflega 2,5 milljarða króna hér á landi frá því að keðjan opnaði fyrstu verslun sína á landinu í lok ágúst í fyrra til loka maímánaðar. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
H&M opnaði fyrstu verslun sína hér á landi í Smáralind í lok ágústmánaðar en önnur verslun keðjunnar var opnuð í Kringlunni um mánuði síðar. Stefnt er að opnun þriðju H&M verslunarinnar hér á landi á Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur.
Upplýsingar um sölu sænska verslunarrisans á tímabilinu mars til maí birtust í fjórðungsuppgjöri keðjunnar í síðustu viku. Salan hefur dregist saman frá opnun en hún nam tæplega 670 milljónum króna á fyrsta fjórðungi yfirstandandi rekstrarárs H&M, frá byrjun mars til loka maí síðastliðins, borið saman við 965 milljóna króna veltu frá byrjun september til loka nóvember í fyrra. Salan í verslununum tveimur á því tímabili nam um 56 milljónum sænskra króna sem jafngildir tæplega 670 milljónum íslenskra króna. Það samsvarar um 3,6 milljónum króna á verslun á dag.
Dróst salan saman um 6,7 prósent frá fyrri fjórðungi, sem náði frá 1. desember til 28. febrúar, en þá seldi H&M fatnað fyrir alls 715 milljónir króna. Alls seldi H&M föt fyrir ríflega 2.500 milljónir króna hér á landi frá opnun 26. ágúst í fyrra til 31. maí. Hefur meðalvelta á verslun á dag því verið um 4,5 milljónir króna.