Neytendasamtökin gagnrýna gildistíma gjafabréfa sem keypt eru hjá íslensku flugfélögunum Icelandair og WOW air. Samtökin telja eðlilegt að gildistími slíkra bréfa sé fjögur ár, sem er almennur fyrningarfrestur á kröfum.
Langmest sé kvartað til samtakanna yfir gjafabréfum flugfélaganna og algengt sé að gildistími þeirra renni út áður en eigandinn nái að nýta sér inneignina. Gildistími gjafabréfa hjá Icelandair sé tvö ár en hjá WOW air aðeins eitt ár. „Ekki nóg með það heldur þarf eigandi bréfsins að vera búinn að fara í ferðina innan ársins. Samkvæmt þeim kvörtunum sem samtökunum berast vegna gjafabréfa WOW air hefur hins vegar verið lítill vilji til að framlengja gildistímann. Neytendasamtökin hvetja WOW air til að leysa úr þeim gjafabréfamálum sem út af standa enda skilmálar gjafabréfanna beinlínis ósanngjarnir,“ segir í tilkynningu frá Neytendasamtökunum.
Neytendasamtökin segja fyrirtæki sem selji gjafabréf hafa fengið fjármagn inn í reksturinn og telja að í raun mætti í þessu sambandi tala um vaxtalaust lán. „Það er því í hæsta máta óeðlilegt að inneignin fyrnist án þess að neytandinn hafi nokkuð um það að segja.“
Eftir að Neytendasamtökin höfðu sent WOW air erindi og farið fram á að gildistíminn yrði lengdur hætti félagið sölu á gjafabréfum. Hins vegar berast samtökunum þó enn kvartanir enda eflaust töluvert magn af gjafabréfum enn í umferð. Kvartanir berist einnig vegna gjafabréfa Icelandair, en þær séu færri enda gildistíminn aðeins lengri. „Icelandair er að sjálfsögðu einnig hvatt til að leysa úr málum sinna viðskiptavina og að lengja gildistíma gjafabréfa í fjögur ár.“
Neytendasamtökin segjast ekki geta ráðlagt fólki að kaupa gjafabréf flugfélaganna í ljósi fjölda kvartana þótt hugurinn sé góður.
„Þá telja samtökin að fyrirtæki sem ekki treysta sér til að hafa sanngjarnan gildistíma á gjafabréfum ættu að sleppa því að selja slík bréf.“