Gagnrýna gjafabréf Icelandair og WOW

Neytendasamtökin gagnrýna alltof stuttan gildistíma gjafabréfa sem keypt eru hjá íslensku flugfélögunum Icelandair og WOW air. Samtökin telja eðlilegt að gildistími slíkra bréfa sé fjögur ár, sem er almennur fyrningarfrestur á kröfum.

Icelandair WOW air
Auglýsing

Neyt­enda­sam­tökin gagn­rýna gild­is­tíma gjafa­bréfa sem keypt eru hjá íslensku flug­fé­lög­unum Icelandair og WOW air. Sam­tökin telja eðli­legt að gild­is­tími slíkra bréfa sé fjögur ár, sem er almennur fyrn­ing­ar­frestur á kröf­um.

Lang­mest sé kvartað til sam­tak­anna yfir gjafa­bréfum flug­fé­lag­anna og algengt sé að gild­is­tími þeirra renni út áður en eig­and­inn nái að nýta sér inn­eign­ina. Gild­is­tími gjafa­bréfa hjá Icelandair sé tvö ár en hjá WOW air aðeins eitt ár. „Ekki nóg með það heldur þarf eig­andi bréfs­ins að vera búinn að fara í ferð­ina innan árs­ins. Sam­kvæmt þeim kvört­unum sem sam­tök­unum ber­ast vegna gjafa­bréfa WOW air hefur hins vegar verið lít­ill vilji til að fram­lengja gild­is­tím­ann. Neyt­enda­sam­tökin hvetja WOW air til að leysa úr þeim gjafa­bréfa­málum sem út af standa enda skil­málar gjafa­bréf­anna bein­línis ósann­gjarn­ir,“ segir í til­kynn­ingu frá Neyt­enda­sam­tök­un­um.

Neyt­enda­sam­tökin segja fyr­ir­tæki sem selji gjafa­bréf hafa fengið fjár­magn inn í rekst­ur­inn og telja að í raun mætti í þessu sam­bandi tala um vaxta­laust lán. „Það er því í hæsta máta óeðli­legt að inn­eignin fyrn­ist án þess að neyt­and­inn hafi nokkuð um það að segja.“

Auglýsing

Eftir að Neyt­enda­sam­tökin höfðu sent WOW air erindi og farið fram á að gild­is­tím­inn yrði lengdur hætti félagið sölu á gjafa­bréf­um. Hins vegar ber­ast sam­tök­unum þó enn kvart­anir enda eflaust tölu­vert magn af gjafa­bréfum enn í umferð. Kvart­anir ber­ist einnig vegna gjafa­bréfa Icelanda­ir, en þær séu færri enda gild­is­tím­inn aðeins lengri. „Icelandair er að sjálf­sögðu einnig hvatt til að leysa úr málum sinna við­skipta­vina og að lengja gild­is­tíma gjafa­bréfa í fjögur ár.“

Neyt­enda­sam­tökin segj­ast ekki geta ráð­lagt fólki að kaupa gjafa­bréf flug­fé­lag­anna í ljósi fjölda kvart­ana þótt hug­ur­inn sé góð­ur.

„Þá telja sam­tökin að fyr­ir­tæki sem ekki treysta sér til að hafa sann­gjarnan gild­is­tíma á gjafa­bréfum ættu að sleppa því að selja slík bréf.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent