Trump segir Þýskaland vera „fanga Rússa“

Bandaríkjaforseti byrjaði leiðtogaráðstefnu NATO með hörðum orðum í garð Þýskalands og annarra bandalagsþjóða.

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Jens Stoltenberg aðalritari Sameinuðu þjóðanna í Brussel fyrr í dag.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Jens Stoltenberg aðalritari Sameinuðu þjóðanna í Brussel fyrr í dag.
Auglýsing

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti gagn­rýnir Þýska­land vegna við­skipta við Rúss­land og önnur banda­lags­ríki fyrir lág fjár­fram­lög á leið­toga­ráð­stefnu Atla­hafs­banda­lags­ins í morg­un. Þetta kemur fram í fréttum á vef Guar­dian og New York Times

Ráð­stefn­an, sem hófst í dag í Brus­sel, er árlegur við­burður leið­toga banda­lags­þjóð­anna og stendur yfir í tvo daga. Útlit er fyrir að ráð­stefnan í ár verði sú umpólað­asta í 69 ára sögu banda­lags­ins, en sam­kvæmt Guar­dian hafa þær venju­lega verið reglu­bundnar og fylgt fyr­ir­fram ákveð­inni dag­skrá. 

Á morg­un­verð­ar­fundi með Jens Stol­ten­berg, aðal­rit­ara sam­tak­anna, í morgun gaf Trump hins vegar til kynna að annað væri uppi á ten­ingnum í ár, en þar gagn­rýndi hann harð­lega þýsku rík­is­stjórn­ina fyrir orku­við­skipti sín við Rúss­land og sagði hana vera „fanga Rússa.“ Banda­ríkja­for­set­inn sagði það vera „mjög sorg­legt“ og „óvið­eig­andi“ að Þýska­land stundi slík við­skipti á tímum sem við ættum að vera á varð­bergi gagn­vart Rúss­um. „Það ætti aldrei að hafa mátt ger­ast,“ bætir Trump við. „Þýska­land er algjör­lega stjórnað af Rúss­landi þar sem þeir munu fá 60-70% orku sinnar þaðan auk nýrrar leiðslu.“

Auglýsing

„Óvið­eig­andi“ sam­band

Sam­band Þýska­lands við Rúss­land var ekki eina málið sem Trump fannst „óvið­eig­and­i,“ en for­set­inn gagn­rýndi einnig lítil fjár­fram­lög Þýska­lands  til sam­bands­ins miðað við Banda­rík­in. Sam­kvæmt Trump nema árlegar greiðslur Þjóð­verja til NATO rúm­lega einu pró­senti af lands­fram­leiðslu þeirra, sam­an­borið við 4,2 pró­sent í til­felli Banda­ríkj­anna. 

Í því sam­bandi beindi Trump sjónum sínum einnig að öðrum lönd­um. „Mörg lönd eru ekki að borga það sem þau ættu að borga, en í sann­leika sagt skulda mörg þeirra okkur gíf­ur­legar upp­hæðir til langs tíma,“ sagði Trump á fund­inum í morg­un, sam­kvæmt New York Times. „Hvað mig varðar eru þau að brjóta af sér þar sem Banda­ríkin hafa þurft að borga fyrir þau.“



Sam­kvæmt frétt Guar­dian frá því í gær höfðu leið­togar ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (e. NATO) haft áhyggjur af áherslum Trump á ráð­stefn­unni, ann­ars vegar vegna mis­ræmis í fjár­fram­lögum ríkj­anna og hins vegar vegna fyr­ir­hug­aðs fundar við Vla­dimir Putin for­seta Rúss­lands í næstu viku. Trump hefur einnig áður lýst yfir óánægju sína á litlum fjár­stuðn­ingi NATO-­ríkja, en í gær birti hann Twitter færslu þar sem ein­fald­lega stóð: „NATO-­ríki eiga að borga MEIRA, Banda­ríkin eiga að MINNA. Mjög ósann­gjarnt!“ Færsl­una má sjá hér að ofan.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent