Segja spurningum enn ósvarað um WOW og Icelandair

Afkomutilkynningar Icelandair og WOW air vekja upp fjölmargar spurningar, samkvæmt nýrri frétt á vef Túrista.

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air
Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air
Auglýsing

Vef­síða Túrista segir ýmsum spurn­ingum ósvarað um stöð­u WOW og Icelanda­ir í ljósi nei­kvæðra afkomutil­kynn­inga félag­anna beggja í síð­ustu viku. Þar á meðal er spurt hvort WOW sé enn óvarið elds­neyt­is­verð­hækk­unum og hversu háar upp­hæðir íslenskir bankar hafa lánað þeim. 

Hugs­an­leg aðkom­a ­Arion ­banka að rekstri flug­fé­lag­anna var til umræðu í frétt­inni, en bank­inn jók útlán sín til sam­göngu­fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ust­unni um 11 millj­arða árið 2017. Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hvaða fyr­ir­tæki fengu þessi lán, en í frétt­inni er spurt hvaða augum for­svars­menn ­Arion líta á stöð­una ef stór hluti lána­aukn­ing­ar­innar fór til flug­fé­lag­anna tveggja.

Kjarn­inn hefur áður greint frá stöðu flug­fé­lag­anna, en margir grein­ing­ar­að­ilar töldu rekstur þeirra mik­il­vægan fyrir íslenskt efna­hags­líf. Sam­an­lögð hlut­deild beggja félaga af far­þegum til og frá land­inu er um 80%, en sam­kvæmt Elvari Inga ­Möll­er ­sér­fræð­ingi í grein­ing­ar­deild ­Arion ­banka myndi sam­dráttur í fram­boði þeirra hafa kerf­is­læg áhrif.

Í frétt­inni var því líka velt upp hvort fjár­hags­staða WOW a­ir sé enn tryggð út árið 2019, líkt og félagið til­kynnti um miðjan nóv­em­ber í fyrra, vegna sölu á tveim­ur A­ir­bus þot­um. Þar að auki var spurt hvort umrædd sala hafi bætt upp enn stærra tap WOW a­ir en kemur fram í nýbirtri rekstr­ar­nið­ur­stöðu sinni fyrir árið 2017.

Auglýsing

Einnig var spurt um hvort staða flug­fé­lag­anna tveggja gagn­vart rekstr­ar­kostn­aði væri enn óbreytt, en Skúli Mog­en­sen ­for­stjóri og eig­and­i WOW a­ir ­sagði félagið ekki varið verð­hækk­unum á olíu í við­tali við Túrista í febr­úar. Rúmur helm­ingur elds­neytis­kaupa Icelanda­ir er hins vegar var­inn til tólf mán­aða og ættu þeir því að vera betur í stakk búnir til að bregð­ast við hærra olíu­verði í fram­tíð­inni, sé kostn­að­ar­upp­bygg­ing WOW ó­breytt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent