Íslendingar flýja unnvörpum í sólina

Söguleg sala hjá ferðaskrifstofum í sólarlandaferðir þetta sumarið. Fá símtöl þar sem fólk vill komast út samdægurs. Uppselt úr landi segir starfsmaður ferðaskrifstofu. Tíðin hefur sjaldan verið verri á suðvesturhorninu.

Sólarströnd strönd Kanarí
Auglýsing

Það rigndi hvern ein­asta dag í maí sem var met í Reykja­vík, úrkoman var nær þrefalt meiri en í með­al­ári. Það hefur aðeins gerst fjórum sinnum áður, frá því mæl­ingar hófust í Reykja­vík fyrir meira en hund­rað árum síð­an, að rignt hafi hvern ein­asta dag í heilan mán­uð. Í ofaná­lag var svo óvenju kalt líka.

Júní var litlu skárri, aðeins fimm dagar voru þurrir í mán­uð­inum og úrkomu­daga­­fjöldi í júní hefur ekki verið slík­­ur í Reykja­vík nema tvisvar áður, árin 1960 og 1983.

Há­­marks­hiti árs­ins í Reykja­vík í maí og júní var ekki nema 14,3 stig og hæsta hita­tala í júní 13,2 stig.

Auglýsing

Þó að nokkrum sinnum hafi sést til sólar í júlí er það þó ekki svo að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi verið nokkuð um sam­fellda sól­ar­daga.

Ferða­skrif­stof­urnar finna vel fyrir þessu og eru flestar búnar að selja upp ferðir sínar og sæti til sól­ar­landa í júlí og jafn­vel fram yfir versl­un­ar­manna­helgi fram í miðjan ágúst.

Tómas J. Gests­son, fram­kvæmda­stjóri Heims­ferða, segir að júlíf­erðir fyr­ir­tæk­is­ins hafi selst upp í júní. Það hafi ekki gerst á tæp­lega tutt­ugu ára ferli Tómasar í brans­anum að júlí selj­ist upp áður en júní sé lið­inn.

„Það er eitt­hvað um það að fólk hringi og sé alveg sama hvert það fer, en svo er fólk bara að horfa núna í ágúst mán­uð. Ég heyrði í einum í morgun sem fór til spánar í júní. Hann vildi fara bara aftur í ágúst, var búinn að fá nóg af þessu veðri og vildi kom­ast aftur út í ágúst fólk farið að þrá að kom­ast úr rign­ing­unn­i,“ segir Tómas.

Tómas segir að þetta verði met­sumar í sól­ar­landa­ferð­um. Alls býður fyr­ir­tækið upp á meira en 1.700 sæti í júlí sem öll eru upp­seld. Þá séu margir nú þegar farnir að bóka borg­ar­ferðir í haust, þó Heims­ferðir séu ekki farnar að sjá sama kipp­inn í bók­unum þar og kom í sól­ar­landa­ferð­unum í júní.

Ingi­björg Elsa Eisteins­dóttir for­stöðu kona sól­ar- og sér­ferða hjá Gam­an­ferðum tekur í sama streng. Hún segir að þau fái tölu­vert af sím­tölum þar sem fólk vilji kom­ast út í sól­ina bara sama kvöld eða dag­inn eft­ir.

„Fólk er alveg greini­lega komið með nóg af þessu. Við erum eig­in­lega að díla við það vanda­mál núna að það er ekk­ert laust, það er bara upp­selt í næstu brott­far­ir, upp­selt úr land­i,“ segir Ingi­björg.

Hún segir fólk jafn­vel vera að kaupa dýr­ari ferðir ein­fald­lega vegna þarfar fyrir að kom­ast út. Þá séu einnig margir farnir að bóka ferðir fyrir næsta sum­ar, fólk ætli sann­ar­lega ekki að missa af öðru sumri og taki ekki séns­inn á að tíðin verði með sama hætti og þetta sum­ar­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent