Facebook minnkar um 4,5-falda landsframleiðslu Íslands

Markaðsvirði samfélagsmiðlafyrirtækisins hefur hríðfallið fyrsta daginn eftir afkomuviðvörun félagsins og er jafnt landsframleiðslu Íslands til margra ára.

Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri Facebook.
Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri Facebook.
Auglýsing

Mark­aðsvirð­i Face­book hefur minnkað um meira en 11.600 millj­arða íslenskra króna eftir afkomu­við­vörun frá fjár­mála­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Fallið jafn­gildir 4,5-faldri lands­fram­leiðslu Íslands, en það er næst­stærsta fall sög­unnar hjá skráðu fyr­ir­tæki á einum degi. Frá þessu er greint á vef T­he Gu­ar­dian

Síð­degis í gær birti sam­fé­lags­mið­ill­inn rekstr­ar­nið­ur­stöðu sína fyrir annan árs­fjórð­ung, en sam­kvæmt honum hagn­að­ist fyr­ir­tækið um 5,1 milljón Banda­ríkja­dala og jókst hann um 42% milli ára. Hagn­að­ar­hlut­fallið var 31% og fjöldi dag­legra not­enda jókst um 11% miðað við sama tíma­bil í fyrra. 

Þrátt fyrir til­tölu­lega jákvæða rekstr­ar­nið­ur­stöðu urðu fjár­festar fyrir miklum von­brigðum þar sem búist var við enn betri útkomu, auk þess sem vöxtur dag­legra not­enda var lít­ill á stærstu aug­lýs­inga­mörk­uðum félags­ins, Banda­ríkj­unum og Evr­ópu. 

Auglýsing

Í kjöl­far birt­ingar upp­gjörs­ins send­i Face­book svo frá sér afkomu­við­vörun þar sem fyr­ir­tækið bjóst við enn frek­ari sam­drætti í tekju­vexti félags­ins á næstu tveimur árs­fjórð­ung­um. Auk þess til­kynnti mið­ill­inn sam­drátt í  fyrsta skipti sam­drátt í fjölda not­enda í Evr­ópu, en þar fækk­aði þeim um þrjár millj­ón­ir. 

Fram­kvæmda­stjóri Face­book, Mark Zucker­berg, segir auknar fjár­fest­ingar fyr­ir­tæk­is­ins í örygg­is­málum hafi mest áhrif á sam­drátt tekju­vaxt­ar­ins, en fyr­ir­tækið réðst í þær í kjöl­far Cambridge Ana­lyt­ica-hneyksl­is­ins sem skók fyr­ir­tækið fyrr í ár. Hneykslið sner­ist um notkun á per­sónu­upp­lýs­ingum 87 millj­óna manna í aug­lýs­inga­skyni, en Zucker­berg þurfti sjálfur að sitja fyrir svörum hjá Banda­ríkja­þingi og Evr­ópu­þingi vegna þess.

Kon­ráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs, vakti athygli á stóru tapi Face­book í Twitt­er-­færslu í gær­kvöldi, en þá hafði hluta­bréfa­verð sam­fé­lags­mið­ils­ins lækkað um 24% rétt eftir afkomu­við­vörun þess. Með því lækk­aði mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins um 15.300 millj­arða íslenskra króna, en það jafn­gildir sexfaldri lands­fram­leiðslu Íslands. Tístið má sjá hér að ofan. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent