Ferðamenn ánægðari og dvelja lengur

Ánægja ferðamanna á Íslandi hefur aukist nokkuð milli júnímánaða, en Ástralir og Kanadamenn eru ánægðastir með landið. Dvalartími ferðamanna hefur einnig aukist milli mánaða og nú eru 65% þeirra á landinu í lengur en fimm daga.

Heilt yfir virðast ferðamenn ánægðir með Íslandsdvölina sína
Heilt yfir virðast ferðamenn ánægðir með Íslandsdvölina sína
Auglýsing

Ferða­menn á Íslandi í júní voru ánægð­ari með komu sína en þeir sem ferð­uð­ust til lands­ins í júní í fyrra og dvelja lengur en þeir sem komu í maí. Þetta kemur fram í nýjum Ferða­mannapúlsi Gallup. 

Ferða­mannapúls­inn er met­inn út frá fimm und­ir­þátt­um: heildará­nægju með ferð­ina, líkum á að mæla með Íslandi sem áfanga­stað, skynjun á gest­risni Íslend­inga, hvort að ferðin hafi upp­fyllt vænt­ingar og hvort að ferðin hafi verið pen­ing­anna virði. Af þessum þáttum voru það líkur á með­mælum sem mæld­ust hæstar meðal ferða­manna, eða í 89,2 stig af 100 mögu­leg­um. Lægstu ein­kunn fékk síð­ast­nefndi þátt­ur­inn, þ.e. hvort ferðin hafi verið pen­ing­anna virði, en hann fékk 78,2 stig. 

Ástr­alir ánægðast­ir, Bretar óánægð­astir

Sam­kvæmt ferða­mannapúls­in­um, sem mældi vænt­ingar ferða­manna frá 29 lönd­um, vor­u Ástr­al­ir á­nægð­astir með Íslands­dvöl­ina sína, en meðal þeirra mæld­ist ferða­mannapúls­inn með 89,2 stig. Aftur á móti mæld­ist púls­inn lægstur meðal breskra ferða­manna, en þar var hann 80,6 stig. 

Auglýsing

Púls­inn hefur hækkað nokkuð frá því í  júní í fyrra, en þá mæld­ist hann 81,9 meðal ferða­manna á Íslandi. Hins vegar lækk­aði hann örlítið frá mán­uð­inum á und­an, en hann mæld­ist í 83,6 stigum í maí. Einnig hefur ferða­mynstur gest­anna breyst, en hlut­fall ferða­manna sem dvöldu í fimm nætur eða lengur jókst úr 55% í maí upp í 65% í júní. Sam­kvæmt Gallup eru ferða­menn sem gista í fimm nætur eða lengur almennt ánægð­ari en þeir sem gista skem­ur. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent