Vikan fyrir verslunarmannahelgi er jafnan ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Í fyrra seldust um 767 þúsund lítrar af áfengi og um 137 þúsund viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar þessa viku. Til samanburðar má gera ráð fyrir að um 110 þúsund viðskiptavinir komi að jafnaði í Vínbúðirnar í hverri viku í júlí. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu ÁTVR.
„Reynslan sýnir að flestir viðskiptavinir koma í Vínbúðina föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi sem er jafnan einn annasamasti dagur ársins. Í fyrra seldust 230 þúsund lítrar þann dag og fjöldi viðskiptavina var um 38 þúsund. Flestir viðskiptavinir koma á milli kl. 16 og 18, eða allt að 6.400 viðskiptavinir á klukkustund. Þar sem álagið er mest er algengt að grípa þurfi til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum.“
ÁTVR beinir því til viðskiptavina sinna sem vilja forðast langar biðraðir að vera tímanlega. Flest bendi til þess að viðskiptavinafjöldi fyrir verslunarmannahelgi í ár verði svipaður og í fyrra. Í Vínbúðunum er opið um verslunarmannahelgina á föstudegi og laugardegi en lokað sunnudag og mánudag (frídag verslunarmanna)