Bresk þingnefnd hvetur til refsinga gegn samfélagsmiðlum

Nefnd breska fjölmiðlaráðuneytisins um aðgerðir gegn falsfréttum mældi með harðri löggjöf gegn samfélagsmiðlum.

Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri Facebook.
Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri Facebook.
Auglýsing

Bresk þing­nefnd um staf­ræna miðla, íþróttir og menn­ingu mældu með harð­ari lög­gjöf gegn sam­fé­lags­miðlum í skýrslu sinni um fals­fréttir sem átti að hafa verið birt í gær en var lekið á net­ið.

Skýrsl­unni var lekið af Dom­in­ic Cumm­ings, sem fór fyrir fram­boði breskra útgöngu­sinna úr Evr­ópu­sam­band­inu fyrir kosn­ing­arnar 2016, en hann var gagn­rýndur harð­lega í henn­i. Cumm­ings út­hróp­aði sjálfur nið­ur­stöður skýrsl­unnar sem „fals­frétt­ir,“ en það var einmitt umfjöll­un­ar­efni skýrsl­unn­ar. 

Sam­kvæmt umfjöll­un CNN um skýrsl­una, fór þing­nefndin yfir mis­vísandi upp­lýs­ingar sem birtar hafa verið á sam­fé­lags­miðlum og tengsl þær við kosn­ingar í Bret­landi. Skýrslan greinir meðal ann­ars frá aug­lýs­ingum stjórn­mála­manna, hneyksl­is­ins í kringum breska grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­ið Cambridge Ana­lyt­ica, Brex­it-­at­kvæða­greiðsl­una, rúss­neska íhlutun í kosn­ingum þar í landi og kosn­inga­lög­um. 

Auglýsing

 Í skýrsl­unni mældu nefndin einnig með harð­ari lög­gjöf gegn sam­fé­lags­miðlum sem birta mis­vísandi aug­lýs­ingar og fals­fréttir og gagn­rýnir sér­stak­lega Face­book ­fyrir „stöðuga tregðu“ gegn því að koma á fót innri rann­sókn um það hvort og hvernig Rúss­land not­aði mið­il­inn til að hafa áhrif á val kjós­enda. Enn fremur kall­aði nefndin for­stjóra mið­ils­ins, Mark Zucker­berg, til að sitja fyrir svörum hjá þeim. 

Face­book á ekki sjö dag­ana sæla um þessar mund­ir, en verð­miði fyr­ir­tæk­is­ins hefur lækkað um rúmar 119 millj­arða Banda­ríkja­dala eftir að upp­gjör félags­ins birt­ist í síð­ustu viku. Fram undan eru mál­sóknir á hendur Zucker­berg, sem liggur undir harðri gagn­rýni vegna leka Cambridge Ana­lyt­ica á per­sónu­upp­lýs­ingum not­enda mið­ils­ins.

Auk þess lagði nefndin til að bann við póli­tískum aug­lýs­ingum á sam­fé­lags­miðlum nálægt kjör­dag ættu að vera tekið til greina, auk sér­stakrar skatt­lagn­ingar á aug­lýs­inga­tekjum miðl­anna til að fjár­magna her­ferð um fjöl­miðla­læsi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent