Samkomulag um sálfræðiþjónustu eftir stór áföll fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hefur verið samþykkt milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og LSS, Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Frá þessu er greint í frétt á vefsíðu LSS.
Í samkomulaginu kemur fram að greiður og tryggur aðgangur að sálfræðiþjónustu sé lykilatriði fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, sem í daglegum störfum þurfa að glíma við stór áföll, slys og dauðsföll.
„Í þessu samkomulagi felst viðurkenning á því hversu mikilvægt það er að þessar stéttir fái fullnægjandi sálfræðilegan stuðning strax í kjölfar stórra áfalla, segir Jón Guðlaugsson, varaformaður Félags slökkviliðsstjóra á Íslandi.
Samkomulagið felur í sér að slökkviliðsstjórar geta óskað eftir sálfræðiþjónustu þegar þeir telja þörf á fyrir starfsmenn þeirra og það sama gildir um sjúkraflutningamenn. Landssamband Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna mun einnig hvetja ríkið til þess að veita sjúkraflutningamönnum sem starfa á þess vegum sömu þjónustu.
Þá hefur Neyðarlínan samþykkt að innleiða ferli sem á að virkja sálfrænan stuðning við vissar aðstæður. Um er að ræða tilraunaverkefni sem verður endurmetið um áramót.
Magnús Smári Smárason, formaður Landssambands slökkviðliðs- og sjúkraflutningamanna, fagnar samkomulaginu og segist vonast til þess að fá svar sem allra fyrst frá ríkinu því þetta mál brenni á þessum stéttum sem daglega horfast í augu við mjög erfiðar aðstæður, sem oft er erfitt að vinna úr sem einstaklingur. „Þetta er afar mikilvægt skref í heildrænni hugsun um velferð okkar starfsmanna því eins og almenningur veit þá geta bæði áföll og andlegt álag leitt af sér fjölmarga kvilla með ófyrirsjáanlegum afleiðingum,“ segir hann.
Samningur hefur verið gerður við Sálfræðingana á Lynghálsi til að sinna þessari þjónustu á landsvísu, segir í fréttinni.