Stjórn HB Granda samþykkir kaup á Ögurvík á 12,3 milljarða

Stjórn HB Granda, eina skráða sjávarútvegsfyrirtækis landsins, hefur samþykkt að kaupa Ögurvík af Brim. Eigandi Brim, og þar með seljandi Ögurvíkur, er stærsti eigandi og forstjóri HB Granda.

HB Grandi
Auglýsing

Stjórn HB Granda sam­þykkti á fundi í gær að kaupa allt hlutafé í útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Ögur­vík ehf. Kaup­verðið er 12,3 millj­arðar króna og sam­kvæmt til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands byggir það á nið­ur­stöðum tveggja óháðra mats­manna.

Auk þess vinnur Deloitte á Íslandi skýrslu um kaupin sam­kvæmt lögum um við­skipti tengdra aðila og verður hún kynnt hlut­höfum með fund­ar­boði. Ástæða þess er sú að frá­far­andi eig­andi Ögur­víkur er Brim. Það félag er stærsti ein­staki eig­andi HB Granda með 35 pró­sent eign­ar­hlut og aðal­eig­andi þess, Guð­mundur Krist­jáns­son, sett­ist nýverið í for­stjóra­stól­inn hjá HB Granda. Hann er því að kaupa eign af sjálfum sér.

Aðrir eig­endur fóru fram á óháð mat

Til­kynnt var um að sam­komu­lag hefði náðst um kaupin þann 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Það sam­komu­lag var þó bundið sam­þykki stjórnar og hlut­hafa­fund­ar.

Stærstu eig­endur HB Granda, að Brim frá­­­töldu, eru íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­­ir. Líf­eyr­is­­sjóður verzl­un­ar­manna á 13,66 pró­­sent hlut, Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins á 9,94 pró­­sent hlut, Gildi líf­eyr­is­­sjóður á 8,62 pró­­sent hlut og Birta líf­eyr­is­­sjóður á 8,62 pró­­sent hlut.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í vik­unni að aðrir hlut­hafar hefðu lagt mikla áherslu á að utan­­að­kom­andi aðilar yrðu fengnir til að leggja mat á þau verð­­mæti sem HB Grandi er að kaupa, í ljósi þess að verið sé að kaupa félag sem fyrir er í eigu for­­stjóra HB Granda og stærsta eig­anda þess. Ekki er til­greint í til­kynn­ing­unni til kaup­hallar hvaða utan­að­kom­andi aðilar mátu virði Ögur­vík­ur.

Auglýsing
Við­skiptin eru einnig háð sam­­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Til stendur að fjár­­­magna kaupin með eigin fé og láns­fjár­­­magni.

16,4 sinnum eigið féð

Kjarn­inn greindi frá því á mán­u­dag að sam­­kvæmt árs­­reikn­ingi Ögur­víkur fyrir árið 2017 þá hafi hagn­aður félags­­ins numið 37 millj­­ónum króna. Það hagn­að­ist hins vegar um 485 árið 2017. Félagið var með 747 millj­­­ónir í eigið fé í lok árs. Eignir námu 6,25 millj­­­örðum króna en skuldir 5,5 millj­­­örðum króna. Þar af voru lang­­­tíma­skuldir í erlendri mynt, 4,8 millj­­­arðar króna.

Verð­mið­inn sem til­­­kynnt var um til kaup­hallar er því 16,4 sinnum eigið fé félags­­­ins, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs í fyrra.

Til sam­an­­­burðar er verð­mið­inn á HB Granda nú 56,5 millj­­­arðar króna, en eigið fé félags­­­ins var um mitt þetta ár 250 millj­­­ónir evra, eða sem nemur um 32,5 millj­­­örðum króna. Mark­aðsvirðið er því 1,7 sinnum eigið fé félags­­­ins.

Gerir út einn fryst­i­­tog­­ara

Ögur­vík er útgerð­­ar­­fé­lag í Reykja­vík sem gerir út fryst­i­­tog­ar­ann Vigra RE 71. Afla­heim­ildir hans á fisk­veið­i­­ár­inu sem hófst í byrjun mán­aðar eru 7.680 tonn af botn­­fiski og 1.663 tonn af mak­ríl. Vigri RE er eitt kvóta­hæsta fiski­­skip íslenska flot­ans.

Rúm tvö ár eru síðan að Brim keypti Ögur­vík, en þá var kaup­verðið sagt trún­­að­­ar­­mál.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent