Forsætisráðherra hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnar Íslands frá 28. september síðastliðnum skipað nefnd til að leiða fyrir hönd stjórnvalda sáttaviðræður við fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem sýknaðir voru með dómi Hæstaréttar Íslands þann 27. september síðastliðinn í endurupptökumáli og aðstandendur þeirra.
Þetta kemur fram í frétt forsætisráðuneytisins.
Nefndina skipa Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur, en hún mun sitja sem fulltrúi forsætiráðuneytis og formaður nefndarinnar, Bryndís Helgadóttir skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu og Magnús Óskar Hafsteinsson sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Verkefni nefndarinnar eru nánar tiltekið að koma fram fyrir hönd stjórnvalda í viðræðum og sáttaumleitunum við aðila málsins og aðstandendur þeirra og gera tillögu til forsætisráðherra og ríkisstjórnar um hugsanlega greiðslu miska- og skaðabóta eða eftir atvikum svonefndra sanngirnisbóta til aðila málsins og aðstandenda þeirra, segir í fréttinni.