WOW air skylt að útvega annað flugfar til sömu borgar

Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu, segir WOW air ekki uppfylla reglur um réttindi flugfarþeganna með því að bjóða ekki farþegum flug með öðru flugfélagi.

WOW air
Auglýsing

Flug­vélið WOW air ber að bjóða far­þegum val um annað flug á áfanga­stað eða end­ur­greiðslu á far­miða vegna flugs til þeirra þriggja borga sem fyr­ir­tækið hefur nú ákveðið að aflýsa flugi til, þetta stað­festir Sam­göngu­stofu. Frá þessu er greint á RÚV.

Flug­fé­lagið til­kynnti á dög­unum að öll flug til Stokk­hólms, Edin­borgar og San Francisco í vet­ur, frá 5. nóv­em­ber fram í byrjun apr­íl, séu aflýst vegna hag­ræð­ingar í rekstri. Sam­kvæmt WOW air veldur seinkun á afhend­ingu tveggja nýrra Air­bus A330­neo vélum því að félagið þarf að gera breyt­ingar á leið­ar­kerfi félags­ins í vet­ur, vél­arnar áttu að koma í nóv­em­ber en koma nú ekki fyrr en í lok febr­ú­ar. Í til­kynn­ing­unni kom einnig fram að far­þeg­um, sem hafi fjár­fest í flug­miðum til þess­ara borga, yrði boðið að fá end­ur­greitt eða að gera breyt­ingar á ferða­til­högun sinni án þess að greiða breyt­ing­ar­gjald.

Þór­hildur Elín­ar­dótt­ir, sam­skipta­stjóri Sam­göngu­stofu, segir í svari við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV,  að með þessu sé ekki verið að upp­fylla reglur um rétt­indi flug­far­þeg­anna. Sam­­göng­u­­stofa hefur meðal ann­­ars eft­ir­lit með flug­­­rekstri á sinni könnu og útgáfu flug­­­rekstr­­ar­­leyfa. Sam­kvæmt Þór­hildi kemur fram í 8. grein ESB reglu­gerðar 261/2006 að þegar flugi sé aflýst beri flug­fé­lagi að bjóða far­þega val um nýtt flug á loka ákvörð­un­ar­stað eða end­ur­greiðslu á far­miða. „Í þeim til­fellum þar sem félagið flýgur ekki sjálft lengur á við­kom­andi áfanga­stað þá þarf það að útvega far með öðrum flug­rek­anda,“ segir í Þór­hild­ur.

Auglýsing

Ættu ekki að þurfa hætta við ferð­ina 

Frétta­stofa RÚV greindi á dög­unum frá því að hjón sem höfðu keypt ferð til Edin­borgar með WOW air hefðu aðeins fengið end­ur­greitt flug­farið en ekki gist­ingu. Haft er eftir hjón­unum að að gist­ingin sé hins vegar mun kostn­að­ar­sam­ari en flug­farið og því mikið tap fyrir hjón­in.  Haft var eftir Svan­hvíti Frið­riks­dótt­ur, upp­lýs­inga­full­trúa WOW í frétt­inni að flug­fé­lagið ætli þó að gera sitt besta til að aðstoða þá far­þega sem keyptu gist­ingu í gegnum heima­síðu WOW við að fá gist­ing­una end­ur­greidda. Ef miðað er við ofan­greindar upp­lýs­ingar frá Sam­göngu­stofu þá ættu hjón­in  ekki að þurfa að hætta við ferð­ina, heldur fá boð frá WOW um flug til Edin­borgar með öðru flug­fé­lagi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent