Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR), áður Brim, hefur ákveðið að hætta við söluna á félaginu Ögurvík til HB Granda fyrir 12,3 milljarða. RÚV greinir frá þessu í dag.
Lesa
Í bréfi sem Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR, hefur sent HB Granda, segir að tillaga Gildis sé um fjórða óháða verðmatið á Ögurvík og hún sýni að ekki hafi tekist að eyða öllum efasemdum um að viðskiptin séu gerð á grundvelli armslengdarsjónarmiða.
„Í ljósi reynslu, þekkingar og kunnáttu ÚR á minnihlutavernd, deilum hluthafa og einlægum vilja forsvarsmanna félagsins til að starfa í sátt, samlyndi og án átaka við aðra hluthafa í þeim félögum sem ÚR er hluthafi í, sé það vilji ÚR að ekki verði farið í viðskiptin með Ögurvík að þessu sinni. „ÚR telur það ekki skynsamlegt að knýja viðskiptin í gegn á þessum tímapunkti gegn efasemdum (vilja) eins af stærri hluthöfum í HB Granda,“ segir í bréfinu.