Beiðni Stakksbergs um matslýsingu vegna nýs umhverfismats hafnað

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur hafnað beiðni Stakksbergs ehf. um matslýsingu og heimild til að vinna að deiliskipulagi í Helguvík. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar þarf hins vegar að staðfesta ákvörðunina.

Kísilverksmiðjan í Helguvík
Kísilverksmiðjan í Helguvík
Auglýsing

Beiðni Stakks­bergs ehf. um að skipu­lags- og mats­lýs­ing félags­ins yrði tekin til með­ferðar var hafnað á fundi umhverf­is- og skipu­lags­ráði Reykja­nes­bæjar í dag. Í beiðn­inni var einnig óskað eftir heim­ild til að vinna að deiliskipu­lags­breyt­ingum í sam­ræmi við ofan­greinda skipu­lags- og mats­lýs­ing­u. 

Þetta kemur fram í fund­ar­gerð umhverfs- og skipu­lags­ráðs Reykja­nes­bæjar frá því í morg­un. Umhverf­is- og skipu­lags­ráðs er hins vegar aðeins ráð­gef­andi og því þarf bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar að stað­festa nið­ur­stöðu þeirra á næsta bæj­ar­stjórn­ar­fundi, næst­kom­andi þriðju­dag.

Stakks­berg ehf. er nýr eig­andi kís­il­vers­ins í Helgu­vík. Í sumar aug­lýsti Stakks­berg drög að til­lögu að mats­á­ætlun vegna nýs umhverf­is­mats kís­il­verk­smiðj­unn­ar. Til­lagan var aug­lýst í fjöl­miðlum þann 25. júní síð­ast­lið­inn og óskað var eftir athuga­semdum frá almenn­ing­i. ­Stakks­berg ehf. er félag í eigu Arion banka sem tekið hefur yfir kís­il­verk­smiðj­una í Helgu­vík af þrota­búi United Sil­icon ehf. Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að mark­mið Stakks­berg sé að gera allar þær úrbætur sem nauð­syn­legar séu til að upp­fylla kröfur Umhverf­is­stof­unar en stofn­unin komst að þeirri nið­ur­stöðu í jan­úar síð­ast­liðnum að verk­smiðjan upp­fyllti ekki skil­yrð­i ­fyrir starfs­­leyfi.

Auglýsing

Sam­kvæmt vef­síðu Stakks­bergs er ljóst að verk­smiðjan var áður að mörgu leyti van­búin til fram­leiðslu á kísli. Í til­lögu að mats­gerð gerir Stakks­berg grein fyrir fyr­ir­hug­uðum úrbótum og sett var fram rök­studd áætlun um hvaða umhverf­is­þætti verði fjallað um í mati á umhverf­is­á­hrifum end­ur­nýj­aðrar kís­il­verk­smiðju.

112 athuga­semdir bárust 

Sam­kvæmt heima­síðu Stakks­bergs bár­ust 112 athuga­semdir við til­lög­una. Efni athuga­semd­anna sem bár­ust voru einkum: Almenn mót­mæli við starf­semi kís­il­verk­smiðju í nágrenni bæj­ar­ins, íbúar upp­lifi sig blekkta vegna loft­meng­unar sem barst frá starf­sem­inni, sjón­meng­unar mann­virkja og skipu­lags verk­smiðj­unnar auk efa­semda um fram­kvæmd­ina vegna blekk­inga stofn­anda verk­smiðj­unn­ar. Ásamt því bár­ust athuga­semdir frá umsagn­ar­að­il­um, Veð­ur­stofu Íslands, Reykja­nesbæ og Vinnu­eft­ir­lit­inu. Snér­ust athuga­semdir umsagn­ar­að­ila einkum að for­sendum lík­ans um dreif­ingu efna í and­rúms­lofti, neyð­ar­skor­stein og mat á ásýnd mann­virkja.

Umhverf­is­stofnun sendi einnig inn umsögn þar sem helst var komið inn á: Hlut­verk neyð­ar­skor­steins, áætl­aðar tíma­setn­ingar úrbóta­þátta, fjalla eigi um aðra kosti svo sem mis­mun­andi tækni­lausnir, þann val­kost að end­ur­ræsa ekki verk­smiðj­una, mat eigi að fara fram á áhrifum á sjó­fugla, umhverf­is­stjórn­un­ar­kerfi auk minni athuga­semda á borð við fyr­ir­komu­lag kæl­ing­ar, mark­mið og við­mið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent