Borgarstjóri í veikindaleyfi vegna sýkingar

„Þetta núna tengist ekki einhverjum fjölmiðlamálum. Það er verra að vera ekki í hringiðunni þegar svona er,“ segir Dagur B. Eggertsson um núverandi veikindaleyfi sitt.

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, er í veik­inda­leyfi í nokkra daga á meðan hann nær sér af sýk­ingu. Hann greind­ist með alvar­legan gigt­ar­sjúk­dóm eftir að hafa fengið sömu sýk­ingu síð­asta haust, en sú var alvar­legri. Í sam­ráði við lækna var Dagur settur á með­ferð í fyrra­dag til að sýk­ingin í kvið­ar­holi gangi ekki jafn langt og síð­ast. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Dagur greind­ist með svo­kall­aða fylgi­gigt í sum­ar, sem skerðir hreyfi­getu hans og getur flakkað á milli liða og lagst á líf­færi. „Ég tók þá ákvörðun að ég þyrfti að jafna mig og fékk stað­gengla til þess að sinna mínum skyldum á með­an. Ég bý svo vel að eiga góða sam­starfs­menn. Ég von­ast til að til að vera orð­inn betri eftir helgi, en þarf að meta það með mínum lækn­um.“ segir Dag­ur.

Mikið hefur mætt á meiri­hluta borg­ar­stjórnar síð­ustu daga að svara fyrir Bragga­málið svo­kall­aða, þar sem fram­kvæmdir á vegum borg­ar­innar fóru hund­ruð millj­ónir króna fram úr áætl­un. Það mál ásamt starfs­manna­máli Orku­veit­unnar hafa vakið hörð við­brögð og fjallað hefur verið mikið um bæði málin í fjöl­miðl­um. Á báðum stöðum stendur yfir úttekt á því hvað að var sem fór úrskeið­is. Það er því mikið álag á borg­ar­stjór­anum þessa dag­ana en Dagur segir þessi fjöl­miðla­mál þó ekki hafa áhrif á veik­ind­in. „Þetta núna teng­ist ekki ein­hverjum fjöl­miðla­mál­um. Það er verra að vera ekki í hring­iðunni þegar svona er,“

Auglýsing

„Ég tók það skref í sumar að segja frá því að ég væri með þennan sjúk­dóm og vissi ekki hvernig fram­haldið yrði. Það var kannski til þess að það kæmi ekki á óvart ef ég væri oftar með stað­gengla eða legði lín­urnar öðru­vísi. Það eru von­brigði að í fyrsta sinn sem ég hef þurft að taka frí, fari strax á loft sam­sær­is­kenn­ing­ar. Ég vona að lær­dóm­ur­inn sé ekki sá að manni hefn­ist fyrir að vera opinn. Ég vil ekki að það gangi trölla­sögur um að ég liggi fyrir dauð­an­um.“ segir Dagur B. Egg­erts­son í sam­tali við Frétta­blað­ið.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent