Laun gætu hækkað um allt að 150 prósent

Launakostnaður fyrirtækja gæti meira en tvöfaldast verði fallist á kröfur SGS í komandi kjaraviðræðum. Framkvæmdastjóri SA segir alla tapa ef verkalýðsfélögin ganga of langt í kröfum sínum.

7DM_4083_raw_1603.JPG
Auglýsing

Launa­kostn­aður fyr­ir­tækja gæti meira en tvö­fald­ast og í ein­hverjum til­fellum auk­ist um allt að 150 pró­sent nái Starfs­greina­sam­bands Íslands sínum kröfum í gegn í kom­andi kjara­við­ræð­u­m. Ef reiknað er sam­kvæmt útreikn­ingum sem byggðr eru á kröfu­gerð samn­ings­nefndar sam­bandis sem kynnt var síð­asta mið­viku­dag. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylg­i­­­riti Frétta­­­blaðs­ins um við­­­skipti og efna­hags­­­mál, í dag.

Ef reiknð er með kröfum SGS um krónu­tölu­hækk­anir og styttri vinnu viku án launa­skerð­ingar þá myndu m.a. heilar mán­að­ar­laun hóp­ferða­bíl­stjóra innan Efl­ingar fara úr að með­al­tali 545 þús­und krónum í rúma milljón á þremur árum og hækka því um 98 pró­sent. Launa­hækkun ófag­lærðra starfs­manna á veit­inga­húsum gæti jafn­framt numið allt að 150 pró­sentum ef fall­ist verður á kröf­urn­ar. 

 „­Boð­aðar hækk­anir leggj­ast ekki vel í okk­ur. Það verður að segj­ast. Ef launa­hækk­anir verða óeðli­lega miklar munum við áfram þurfa að halda að okkur hönd­um, skera niður fram­boð enn meira og fækka fólki,“ segir Björn Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Kynn­is­ferða, og bendir á að verði vet­ur­inn átaka­mik­ill á vinnu­mark­aði geti það haft alvar­leg áhrif á ferða­þjón­ust­una. „Ef það verða skærur á vinnu­mark­aði í byrjun næsta árs, til dæmis í febr­ú­ar, mars og apríl þegar bók­un­ar­tíma­bil ferða­manna stendur sem hæst, gæti það haft þau áhrif að það yrði algjört hrun í ferða­þjón­ust­unni næsta sum­ar,“ segir Björn í sam­tali við Mark­að­inn.

Auglýsing

Hall­dór Benja­mín, fram­kvæmda­stjóri SA, segir alla tapa ef verka­lýðs­fé­lög ganga of langt í kröfum sín­um. Hann nefnir að krónan hafi veikst und­an­farið og muni ekki styrkj­ast í bráð. Verð­bólga fari vax­andi vegna hærra inn­flutn­ings­verðs og þá standi fyr­ir­tæki í miklum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum í glímunni við háan launa­kostn­að. „Efna­hags­lífið kólnar hratt um þessar mund­ir. Laun og kaup­geta almenn­ings hefur hækkað mjög mikið síð­ustu þrjú ár. Það er krafta­verk ef það tekst að við­halda núver­andi lífs­kjör­u­m.“ segir Hall­dór. 

Útlit er fyrir erf­iðar kjara­við­ræður á almennum vinnu­mark­aði í vetur en fjöldi kjara­samn­inga losnar um ára­mót­in. For­ystu­menn laun­þega­hreyf­ing­ar­innar hafa staðið saman og kraf­ist þess að gripið sé til rót­tækra aðgerða. Það er ekki aðeins kraf­ist krónu­tölu­hækk­ana launa heldur er jafn­framt kallað eftir því, til dæmis af hálfu VR, að verð­trygg­ingin verði afnum­in, vextir lækk­aðir og hús­næð­islið­ur­inn tek­inn út úr vísi­tölu neyslu­verðs. Fram­kvæmda­stjóri SA hefur á hinn bóg­inn haldið því fram að lítið svig­rúm sé til launa­hækk­ana.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent